Körfubolti

Helgi Már: Tileinka Jakobi Erni sigurinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Helgi Már Magnússon, spilandi þjálfari KR, gat leyft sér að vera kátur eftir að liðið vann sannfærandi sigur á Grindavík í kvöld. Staðan í undanúrslitaeinvígi liðanna er nú jöfn 1-1.

„Vörnin var fín en mér fannst sóknin ekkert spes, jú við vorum agaðri. Þetta var fínn leikur hjá okkur," sagði Helgi eftir leik.

„Ég býst við Grindvíkingum dýrvitlausum í alla leiki. Þetta er úrslitakeppnin og öll lið ætla að sýna sitt besta í þeim leikjum sem eftir eru. Það er alveg gefið."

Brandon Richardson fór meiddur af velli í lok leiks.

„Ég vona að þetta sé ekki alvarlegt. Ég veit ekki hver staðan á honum er," sagði Helgi og tileinkaði Jakobi Erni Sigurðarsyni að lokum sigurinn en hann á afmæli í dag.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×