Körfubolti

Sterkur sigur hjá KR í Fjárhúsinu

KR tók í kvöld forystuna í undanúrslitaeinvígi sínu gegn Snæfelli í Dominos-deild kvenna. KR vann þá sterkan sigur í Fjárhúsinu.

Jafnt var á með liðunum fyrstu þrjá leikhlutana en KR-stúlkur unnu síðasta fjórðunginn með níu stigum og tryggðu sér sigur.

Úrslit:

Snæfell-KR 52-61

Snæfell: Kiarrah Marlow 15, HIldur Björg Kjartansdóttir 12, Hildur Sigurðardóttir 11, Berglind Gunnarsdóttir 8, Helga Björgvinsdóttir 6.

KR: Shannon Mcallum 25, Helga Einarsdóttir 15, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 10, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 7, Anna Ævarsdóttir 2, Hafrún Hálfdánardóttir 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×