Körfubolti

Þetta verður járn í járn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Anton
„Það er alltaf fjör þegar þessi tvö lið mætast," segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, fyrir leik sinna manna gegn Stjörnunni í kvöld.

Liðin eigast við í Stykkishólmi klukkan 19.15 en það verður fyrsti leikur liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Domino's-deildar karla.

Snæfell hafði betur gegn Njarðvík í spennandi viðureignum í 8-liða úrslitunum. Ingi Þór var fyrst og fremst ánægður með hafa komist í gegnum þá rimmu, þó svo að spilamennskan hafi ekki verið upp á tíu.

„Við vorum ekki að spila okkar besta bolta enda að spila gegn góðu liði. En mér fannst rimman gera okkur betri. Við náðum að stíga upp og bæta okkur í hverjum leik."

„Við höfum svo nýtt helgina í að skoða okkur sjálfa og gera okkur tilbúna fyrir nýja rimmu. Það er alltaf heilmikið sem hægt er að laga, bæði í vörn og sókn."

Hann á ekki von á öðru en að Stjörnumenn mæti grimmir til leiks þrátt fyrir erfiðan slag gegn Keflavík í 8-liða úrslitunum.

„Ég á von á að þeir verði mjög vel gíraðir eftir þessa leiki. Stjörnuliðið er svo hlaðið vopnum og er með gríðarlega sterka leikmenn í öllum stöðum. Það sem gildir er að stoppa liðið í heild fremur en að einbeita sér að 1-2 leikmönnum."

Justin Shouse, Stjörnunni, gengur ekki heill til skógar eftir að hafa fengið heilahristing fyrir rúmri viku. „Hann spilaði 35 mínútur í síðasta leik. Hann er mikill baráttumaður og ég trúi ekki öðru en að hann verði á fullu í kvöld."

„Þeir misstu Jovan [Zdravevski] í leikbann í oddaleiknum gegn Keflavík en unnu samt. Það er styrkleikamerki og sýnir hversu góðan leikmannahóp Stjarnan er með."

Hann segir að það séu allir heilir hjá sér. „Það er bara þannig að ef þú ert í búning þá ertu heill. Það er apríl og menn geta bara hvílt sig í sumar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×