Fyrirliði Njarðvíkinga fór úr hnélið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2013 11:45 Ólafur Helgi Jónsson. Mynd/Heimasíða Njarðvíkur
Ólafur Helgi Jónsson, fyrirliði hið unga liðs Njarðvíkinga í Dominos-deild karla, gæti verið frá í marga mánuði eftir að hann meiddist illa í unglingaflokksleik á móti KR á dögunum. Þetta kemur fram í Víkurfréttum. Ólafur Helgi lenti illa í leiknum og fór við það úr hnélið. Það er ljóst að aftari krossbandið er skaddað en hann bíður nú frekari frétta eftir að hafa verið í myndatökum og skoðunum að undanförnu. „Ég vil þakka fyrir þann óendanlega stuðning sem ég hef fengið frá fjölskyldu, leikmönnum, þjálfurum og fólki í kringum mig sem hefur hjálpað mér gríðarlega mikið og mun hjálpa mér áfram í gegnum þetta. Ég kem tvíefldur til baka fyrir fánann og UMFN,“ sagði Ólafur Helgi í samtali við Víkurfréttir. Ólafur Helgi Jónsson var lengi í gang í vetur en sýndi hversu hann er öflugur á seinni hluta tímabilsins. Hann var með 11,5 stig að meðaltali í síðustu þrettán leikjum tímabilsins og var með 11,7 stig í einvíginu á móti Snæfelli í átta liða úrslitunum. Ólafur Helgi er mikill stemningsleikmaður og orkubolti sem smitar út frá sér með leikgleði sinni og baráttu auk þess að vera góð þriggja stiga skytta. Það væri mikill missir fyrir Njarðvíkinga ef hann verður lengi frá.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira