Körfubolti

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Snæfell 97-84 | Stjarnan í úrslit

Stefán Árni Pálsson í Garðabæ skrifar


Stjarnan komst í kvöld í úrslit í Dominos-deild karla í körfubolta er liðið bar sigur úr býtum, 97-84, gegn Snæfell í fjórða leik liðanna í undanúrslitum. Stjarnan vann einvígið 3-1 eftir að hafa tapað fyrsta leiknum í einvíginu. Stjarnan mætir Grindavík í úrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn.

Leikurinn fór vel af stað fyrir gestina og gerðu þeir fyrstu átta stigin í leiknum og staðan orðin 8-0 á einu augabragði. Það gekk allt upp sóknarlega hjá Snæfelli og liðið sýndi  frábæra sóknartilburði. Stjörnumenn fóru aftur á móti ekkert á taugum og komust hægt og rólega inn í leikinn.

Jovan Zdravevski, leikmaður Stjörnunnar, var maðurinn sem kom liðinu í gírinn og var staðan 20-16 fyrir heimamenn eftir fyrsta leikhlutann.  Zdravevski setti niður mikilvægar körfur og kveikti í heimamönnum.

Í öðrum leikhluta var mikið jafnræði á með liðunum og aðeins nokkur stig skildu þau að. Stjörnumenn voru einu skrefi á undan stóran hluta af öðrum leikhluta en Hafþór Ingi Gunnarsson, leikmaður Snæfells, kom sterkur inn undir lok hálfleiksins og setti niður tvo þrista á stuttum tíma, annar þeirra um leið og hálfleiknum lauk. Staðan var því jöfn 38-38 í hálfleik. Það mátti búast við spennandi síðari hálfleik.

Snæfell byrjaði síðari hálfleikinn mun betur og komust fljótlega í 47-42 en það gekk allt upp sóknarlega á fyrstu mínútunum. Stjörnumenn komu eins og fyrr í leiknum til baka og náðu tökum á leiknum. Jarrid Frye var magnaður í liði Stjörnunnar og hafði gert 24 stig eftir þrjá leikhluta. Staðan var 66-59 fyrir lokaleikhlutann og gestirnir ennþá með í leiknum.

Stjörnumenn voru mikið mun betri í fjórða leikhlutanum og komust hægt og rólega í þægilega stöðu sem þeir héldu út leikinn. Leiknum lauk með öruggum sigri Stjörnunnar 97-84.  Jarrid Frye var atkvæðamestur í liðið Stjörnunnar með 27 stig en Jón Ólafur Jónsson var frábær í liði Snæfells með 30 stig.

Stjarnan mætir Grindavík í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.

Hér að ofan má sjá fögnuð Stjörnumanna þegar það var orðið ljóst að liðið væri komið í úrslit.

Stjarnan-Snæfell 97-84 (20-16, 18-22, 28-21, 31-25)

Stjarnan:
Jarrid Frye 27/9 fráköst, Justin Shouse 24/4 fráköst/9 stoðsendingar, Jovan Zdravevski 21, Brian Mills 10/4 fráköst, Dagur Kár Jónsson 10, Marvin Valdimarsson 4/5 fráköst,

Fannar Freyr Helgason 1.

Snæfell: Jón Ólafur Jónsson 30/4 fráköst, Ryan Amaroso 20/14 fráköst, Sigurður Á. Þorvaldsson 9/7 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 8, Sveinn Arnar Davíðsson 7, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 4/6

stoðsendingar, Jay Threatt 3, Ólafur Torfason 3/7 fráköst.

Teitur: Ánægður með þá pressu sem komin er á liðið
„Þetta er bara frábært og mikill léttir,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir sigurinn í kvöld.

„Við fórum í gegnum tvö frábær körfuboltalið á leið okkar í úrslitin sem sýnir hversu sterkir við erum.“

„Nú býður okkur Grindavík í næstu viku en í kvöld verða leikmenn sennilega að jafna sig á ákveðnu spennufalli.“

„Það er mikil reynsla í þessu liði og við eigum að geta nýtt okkur þá reynslu. Það hefur verið lenskan undanfarinn þrjú ár að liðið sem vinnur okkur verður Íslandsmeistari. Nú er það í okkar höndum að svo gerist ekki.“

„Það er verið að spá okkur mikið titlinum í fjölmiðlum og annarsstaðar og ég tel að sú pressa sér bara af hinu góða og við eigum bara að njóta þess að vera í úrslitum.“

Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Teit með því að ýta hér.

Nonni Mæju: Of stór biti að missa leikstjórnandann okkar í leik tvö
„Manni líður bara ömurlega eins og alltaf þegar maður dettur  úr leik,“ sagði Jón Ólafur Jónsson, leikmaður Snæfells, eftir tapið í kvöld.

„Við vorum að elta rosalega lengi í leiknum og það tók sinn toll. Varnarleikur okkar var bara ekki nægilega góður í síðari hálfleiknum eins og sást en þeir gerðu 60 stig í síðari hálfleiknum. Það er ekki hægt að vinna Stjörnuna ef þú spilar ekki góða vörn.“

„Við vorum fínir í fyrri hálfleiknum en menn komu eitthvað værukærir út í þann síðari. Það er auðvitað virkilega stór biti að missa Jay Threatt úr leik en hann  hefur stjórnað okkar leik í allan vetur og hefur verið með einhverjar tuttugu stoðsendingar í hverjum leik.“

„Ég hafði það á tilfinningunni að liðið sem færi í gegnum þessa seríu myndi fara alla leið og ég tel að Stjarnan eigi eftir að verða Íslandsmeistarar.“

Hægt er að sjá myndbandið með því að ýta hér.

Textalýsing frá Ágarði í kvöld:Leik lokið: Stjarnan er komið í úrslit Dominos-deildar karla eftir sigur á Snæfell 97-84 í fjórða leik liðanna í undanúrslitum keppninnar. Stjarnan vann því einvígið 3-1.

40. mín: Stjarnan er níu stigum yfir og 45 sekúndur eftir. Þetta er í raun búið.

39. mín: Justin Shouse fer á línuna fyrir Stjörnuna í stöðunni 89-81 og setur þau bæði niður. Staðan er því 91-81 og 1:30 eftir af leiknum.

38. mín: Þetta verður rosalega erfitt fyrir gestina úr þessu en það munar enn tíu stigum á liðunum. 89-79 þegar Tvær mínútur eru eftir en þetta er samt hægt, það er á hreinu.

37. mín: Nonni Mæju með þrjá þrista í röð fyrir Snæfell. Það munar samt tíu stigum á liðunum 86-76.

36. mín: Nú munar tíu stigum á liðunum og gestirnir verða að fara hressilega í gang. Staðan er 80-70.

35.mín: Justin Shouse með frábæra sendingu á Dag Kar Jónsson sem setti boltann í körfuna í loftinu. Frábær tilþrif hjá þeim litlu.

34. mín: Marvin Valdimarsson að koma Stjörnunni 13 stigum yfir 78-65.

33. mín: Stjörnumenn að ná tökum á leiknum. Snæfell verður að koma með fínt áhlaup núna fljótlega ef þeir ætla sér ekki í sumarfrí. Staðan 76-65.

32. mín: Jovan Zdravevski að setja niður þrist fyrir Stjörnuna og kemur heimamönnum ellefu stigum yfir 72-61.

32. mín: Snæfell með fyrstu stig leikhlutans en staðan er 66-61.

3. leikhluta lokið: Jæja þá er bara loka fjórðungurinn eftir. Staðan er 66-59 fyrir Stjörnuna. Þetta verður án efa spennandi loka leikhluti.

28. mín: Leikurinn er enn samt sem áður spennandi og gestirnir neita að gefast upp. Staðan er 59-55.

27. mín: Óíþróttamannsleg villa dæmd á Ryan Amaroso, leikmann Snæfell, eftir að hann skoraði fína körfu. Hann var ekki sáttur við að hafa ekki fengið villu að auki og sparkaði áttina að leikmanni Stjörnunnar.

26.mín : Jovan Zdravevski setur hér niður þriggja stiga körfu og fær vítaskot að auki, það verður allt vitlaust. Auðvitað setur hann niður vítaskotið. Staðan 53-48.

24. mín: Brian Mills að troða boltanum í körfuna fyrir Stjörnuna. Jarrid Frye skorar síðan tvö stig fyrir þá stuttu síðar. Heimamenn komnir yfir 49-47.

22. mín: Liðin byrja vel sóknarlega og skora hvert stigið á fætur öðru. Þetat verður frábær síðari hálfleikur, það er á hreinu. Staðan 45-42 fyrir Snæfell.

21. mín: Sveinn Arnar Davíðsson, leikmaður Snæfells, setur strax niður þrist og staðan 41-38.

Hálfleikur: Mikið jafnræði var á með liðunum í öðrum leikhluta og er staðan er 38-38. Hafþór Ingi Gunnarsson, leikmaður Snæfells, setti niður sinn annan þrist í leiknum í þann mund sem hálfleiknum lauk.

19. mín: Sigurður Þorvaldsson kemur síðan Snæfelli yfir með tveimur vítaskotum. Staðan 33-31 fyrir gestina.

18. mín: Snæfell að jafna leikinn þegar Hafþór Ingi Gunnarsson setur niður þrist. Staðan 31-31.

17. mín: Allt í járnum núna og mikinn spenna hér í Ásgarði. Staðan er 30-28 fyrir heimamenn.

15. mín: Flottur kafli hjá Snæfell en staðan er 28-26.

13. mín: Öll stemmning með heimamönnum þessa stundina. Staðan er 27-21 og Stjörnumenn með boltann.

11. mín: Dagur Kar Jónsson, leikmaður Stjörnunnar, að koma sterkur inn og setur niður tvær körfur í röð. Staðan 24-19.

1. leikhluta lokið: Stjörnumenn komu heldur betur til baka undir lok leikhlutans og staðan er allt í einu orðin 20-16 fyrir heimamenn.

9. mín: Jay Threatt er kominn inná fyrir Snæfell. Hann er ekki með sama ótrúlega hraða en hann er samt reynslumikill og snjall körfuboltaleikmaður.

8.mín: Heimamenn að komast inn í leikinn og hafa minnkað muninn í 14-13. Jovan Zdravevski, leikmaður Stjörnunnar, er spila virkilega vel.

5. mín: Snæfellingar byrja leikinn virkilega vel og spila sig hvað eftir annað auðveldlega í gegnum vörn Stjörnunnar. Staðan er 12-6.

2. mín: Átta fyrstu stigin koma frá gestunum og staðan er 8-0.

1. mín: Jæja þá er leikurinn farinn af stað. Góða skemmtun kæru lesendur.

Fyrir leik: Jay Threatt var að koma inná á parketið og verður með. Spurning hversu mikið hann tekur þátt en hann hefur líklega verið sprautaður niður og klár í slaginn.

Fyrir leik: Stjörnumenn koma nú út á völlinn eftir góðann fund með Teit Örlygssyni, þjálfara liðsins, og nú taka áhorfendur við sér.

Fyrir leik: Í liði Stjörnunnar eru allir heilir sem hafa tekið þátt í úrslitakeppninni og mæta þeir með sitt sterkasta lið. Þetta verður líklega erfitt fyrir gestina en Hólmarar eru alltaf til alls líklegir í boltanum.

Fyrir leik: Jay Threatt, leikmaður Snæfells, fór úr lið á stórutá í öðrum leik liðanna og var ekki með í síðasta leik í Stykkishólmi. Hann er á skýrslu í kvöld og spurning hvort hann verði leikfær. Það þarf að nota öll brögð sem til eru til að tjasla þessum snjalla leikmanni saman ef hann á að taka þátt í leiknum.

Fyrir leik: Hér er allt að fyllast og stemmning að myndast. Það verður troðfullt í Ásgarði í kvöld, svo eitt er víst.

Fyrir leik: Snæfell vann fyrsta leikinn með einu stigi en Stjörnumenn hafa síðan svarað með tveimur sigrum í röð þar af unnu þeir síðasta leik með fjórtán stiga mun í Hólminum, 93-79.

Fyrir leik: Stjarnan kemst í lokaúrslitin á móti Grindavík með sigri í kvöld en vinni Snæfell þá verður hreinn úrslitaleikur í Stykkishólmi á mánudagskvöldið.

Fyrir leik: Stjörnumenn eru ósigraðir í Garðabænum í þessari úrslitakeppni því þeir unnu báða heimaleiki sína við Keflavík í átta liða úrslitunum og unnu síðan Snæfell 90-86 í öðrum leik liðanna í þessu undanúrslitaeinvígi.

Fyrir leik: Stjörnumenn komust í fyrsta og eina skiptið í úrslitaeinvígið fyrir tveimur árum (2011) þegar Garðbæingar töpuðu fyrir KR-ingum 1-3 í lokaúrslitunum.

Fyrir leik: Snæfell komst síðasta í úrslitaeinvígið fyrir þremur árum (2010) en þá vann liðið KR í oddaleik. Snæfell komst einnig í lokaúrslitin 2004, 2005 og 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×