Handbolti

Róbert og Ásgeir komust í bikarúrslitaleikinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson. Mynd/NordicPhotos/Getty
Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson komust í kvöld í bikarúrslitaleikinn í Frakklandi þegar lið þeirra PSG Handball vann 33-29 sigur á Dunkerque í undanúrslitaleiknum. PSG Handball mætir Montpellier í úrslitaleiknum sem fer fram í Bercy-höllinni í París 25 maí næstkomandi.

Róbert skoraði fimm mörk í leiknum og Ásgeir Örn var með eitt mark. Króatinn Marko Kopljar var markahæstur með sjö mörk en Frakkinn Luc Abalo skoraði sex mörk.

Það verður ekki Íslendingaslagur í úrslitaleiknum því Gunnar Steinn Jónsson og félagar í Nantes urðu að sætta sig við 29-31 tap á móti Montpellier. Gunnar Steinn skoraði tvö mörk í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×