Körfubolti

Nonni Mæju framlengir við Snæfell

Jón Ólafur Jónsson.
Jón Ólafur Jónsson.

Einn besti leikmaður Dominos-deildar karla, Jón Ólafur Jónsson, er búinn að skrifa undir nýjan eins árs samning við Snæfell.

Jón Ólafur, eða Nonni Mæju eins og hann er iðulega kallaður, var valinn í úrvalslið Dominos-deildarinnar á síðustu leiktíð og hefur verið lykilmaður hjá Snæfelli í mörg ár.

Nonni sagði í samtali við karfan.is að nokkur lið hefðu sýnt honum áhuga en hann hefði ákveðið að halda tryggð við Snæfell.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×