Strætó kaupir 12 nýja Iveco vagna frá BL Finnur Thorlacius skrifar 16. ágúst 2013 15:15 Við afhendingu nýju vagnanna
Strætó bætti í vikunni 12 nýjum strætisvögnum ef gerðinni Iveco Bus Crossway LE í 90 vagna flota sinn. BL afhenti Strætó á dögunum 12 nýja strætisvagna af gerðinni Iveco Bus Crossway LE. Nýju vagnarnir uppfylla allir nýjustu kröfur um mengunarvarnir samkvæmt Euro 5 staðlinum og ítrustru öryggis- og gæðakröfur sem gerðar eru til strætisvagna á Norðurlöndunum. Í vögnunum er búnaður sem auðveldar aðgengi fatlaðra. „Þessi kaup eru liður í áætlunum um reglubundna endurnýjun á vagnakosti. Meðalaldur stætisvagnaflotans er núna í kringum 10 ár en við vildum gjarnan hafa rekstrarvagnaflotann, þ.e. þá vagna sem eru í mestri daglegri notkun, yngri eða nær 5 árum að jafnaði. Fyrir dyrum stendur enn frekari endurnýjun á vagnaflotanum,“ segir Reynir Jónsson framkvæmdastjóri Strætó. „Eins og nærri má geta er afar mikilvægt fyrir okkur að fylgjast vel með og yngja flotann eins og frekast er kostur með það að leiðarljósi að halda rekstrarkostnaði í lágmarki.“ Á hverjum degi eru um 100 strætisvagnar í akstri á höfuðborgarsvæðinu og þar af eru 62 í eigu Strætó bs. Samtals aka vagnarnir um 9 milljón kílómetra á ári, en þeir eru í akstri um 19 tíma á hverjum sólarhring. Fjöldi farþega Strætó hefur aukist verulega á síðastliðnum árum. Á árinu 2009 voru farþegar um 8 milljónir en ætla má að í ár fari fjöldinn í um 11 milljónir farþega.
Mest lesið „Þetta verður allt saman stórvarasamt í fyrramálið“ Veður Spyr hvort ökumenn myndu keyra á gangandi á götunni Innlent Myndskeiðið segi ekki alla söguna Innlent „Auðvitað slær þetta mig ekki vel“ Innlent Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Erlent Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Erlent „Fyrstu þrjú árin sem ég var veik voru algjört helvíti“ Innlent Reynsluboltum sagt upp í skugga ráðgjafabruðls Innlent Séra Flosi Magnússon fallinn frá Innlent Var ofurölvi þegar hann hljóp yfir Reykjanesbraut Innlent