Tiltölulega nýlega fór þeim skiptum sem starfsmenn ÁTVR spurðu mig um skilríki að fækka. Allan þrítugsaldurinn, blessuð sé minning hans, var stundin jafnvandræðaleg þegar ég mætti á kassann. Verð ég spurður eða ekki? Vissara að rétta bara kortið til þess að koma í veg fyrir að þurfa að leita að ökuskírteininu til að sanna 28 ára aldur minn.
Barnslegt útlitið er líklega tengt þeirri staðreynd að lítið fer fyrir skeggvexti. Það hefur reyndar aldrei angrað mig og stundum komið sér vel. Takmarkaður vöxtur líkamshára kom til dæmis í veg fyrir að vinir mínir gætu sett mig í kvalafulla vaxmeðferð í steggjuninni eins og svo margir hafa þurft að kynnast.
Í blóðbankanum vel ég plástur frekar en teygju sem þeir hármiklu kjósa vegna kvíða út af brottnámi plástursins nokkrum klukkutímum síðar.
Á hinn bóginn þarf ég daglega í marsmánuði ár hvert að árétta, í gríni að sjálfsögðu, að ég hafi ákveðið að sitja hjá í Mottumars þetta árið. Söfnun fyrir keppnina árið eftir sé þó löngu hafin. Eitt árið næ ég væntanlega að safna í mottu og leggja góðum málstað lið með nokkrum þúsundköllum. Hins vegar eru líkurnar á að ég fullorðnist og byrji að drekka vinsælasta orkudrykk heimsins litlar sem engar.
Að vera orðinn 31 árs og drekka ekki kaffi sætir reglulega tíðindum. „Drekkurðu ekki kaffi?“ Þau skipta tugum ef ekki hundruðum þau skipti sem ég hef þurft að afþakka kaffibolla og útskýra að mér þyki kaffi ekki gott.
Í starfi blaðamanns þykir slíkt náttúrulega sturlun, líklega líkt og að reykja ekki á sömu vinnustöðum í gamla daga, en einhvern veginn kemst ég í gegnum daginn.
Fólk virðist þrátt fyrir allt hafa áhyggjur af kaffileysi mínu. „Mér fannst kaffi heldur ekki gott fyrst. En ég byrjaði bara á frappuccino og mocha. Hefurðu prófað það?“ Spurning sett fram eins og ég sé með sjúkdóm sem muni draga mig til dauða nema ég bregðist við strax. Kaffi lyktar illa, bragðast illa, virðist gera tennur gular og er ávanabindandi. Svarið við spurningunni er einfalt: Nei, takk!
