Bílar

Draumatölur frá BMW

Finnur Thorlacius skrifar
Hver vill ekki eiga bíl sem er 345 hestöfl, 4,5 sekúndur í hundraðið en eyðir aðeins 4,3 lítrum á hverja 100 kílómetra? Þeir eru líklega margir og þá er bara eitt að gera, kaupa sér BMW 5 Alpina D3 Bi-Turbo.

Þessi bíll er með sex strokka dísilvél og tvær túrbínur og hann má bæði fá sem venjulegan sedan bíl og í station útgáfu sem hentar vel til langra ferðalaga. Í þeim ferðalögum má flýta sér verulega á þýsku hraðbrautunum því hámarkshraði bílsins er 278 km/klst.

Þessi bíll er ætlaður á markað í Evrópu og hann mun ekki fást í Bandaríkjunum þar sem heimamenn þar eru ekki ginkeyptir fyrir dísilbílum. Það gæti þó verið að breytast.






×