Körfubolti

KR vann Snæfell - Úrslit í Lengjubikar karla í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Jónsson var öflugur í kvöld.
Guðmundur Jónsson var öflugur í kvöld. Mynd/Vilhelm
KR, Keflavík og Njarðvík eru áfram með fullt hús í Lengjubikar karla í körfubolta eftir leiki kvöldsins en Snæfell tapaði hinsvegar sínum fyrsta leik í keppninni þegar KR-ingar komu í heimsókn í Hólminn.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leik Vals og Keflavíkur í Vodafonehöllinni og tók þessar myndir hér fyrir ofan.

Pavel Ermolinskij vantaði bara eina stoðsendingu í þrennuna þegar KR vann 87-85 sigur á Snæfelli i Stykkishólmi. Pavel var með 17 stig, 10 fráköst og 9 stoðsendingar en hann var einn af fimm leikmönnum liðsins sem skoruðu 14 stig eða meira. Zachary Warren var langatkvæðamestur hjá Snæfelli með 26 stig.

KR-ingar voru með fjórtán stiga forskot á móti Snæfelli fyrir lokalokaleikhlutann en Snæfellsliðið gafst ekki upp og var næstum því búið að vinna upp muninn í lokin.

Guðmundur Jónsson skoraði 21 stig þegar Keflavík vann 20 stiga sigur á Val á Hlíðarenda en Valsmenn voru yfir eftir fyrsta leikhlutann. Fjórir aðrir leikmenn Keflavíkur náðu að brjóta tíu stiga múrinn í leiknum.

Hér fyrir neðan má sjá úrslit og stigaskor í leikjum kvöldsins í Lengjubikar karla.



Úrslit og stigaskor í leikjum kvöldsins:

Fyrirtækjabikar karla, A-riðill

Valur-Keflavík 77-97 (24-20, 17-26, 15-24, 21-27)

Valur: Chris Woods 28/12 fráköst, Oddur Birnir Pétursson 12/5 fráköst, Benedikt Blöndal 10/4 fráköst, Rúnar Ingi Erlingsson 7, Birgir Björn Pétursson 7, Oddur Ólafsson 4/4 fráköst, Ragnar Gylfason 4, Jens Guðmundsson 3, Benedikt Skúlason 2.

Keflavík: Guðmundur Jónsson 21/4 fráköst, Darrel Keith Lewis 19/4 fráköst, Michael Craion 17/12 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 12/7 fráköst, Valur Orri Valsson 11, Gunnar Ólafsson 5, Almar Stefán Guðbrandsson 4, Ragnar Gerald Albertsson 3, Andri Daníelsson 3, Þröstur Leó Jóhannsson 2.

Stig liða í riðlinum:

1. Keflavík 6

2. Grindavík 4

3. Tindastóll 2

4. Valur 0



Fyrirtækjabikar karla, B-riðill

Njarðvík-Fjölnir 119-66 (30-16, 30-15, 32-16, 27-19)

Njarðvík: Ágúst Orrason 26/5 fráköst, Elvar Már Friðriksson 25/4 fráköst/10 stoðsendingar, Logi Gunnarsson 19/4 fráköst, Nigel Moore 14/9 fráköst/5 stolnir, Hjörtur Hrafn Einarsson 11/5 fráköst, Óli Ragnar Alexandersson 7/7 stoðsendingar, Ragnar Helgi Friðriksson 6, Magnús Már Traustason 5/5 fráköst, Brynjar Þór Guðnason 4, Egill Jónasson 2/5 varin skot.

Fjölnir: Emil Þór Jóhannsson 17/5 fráköst, Daron Lee Sims 11/6 fráköst, Haukur Sverrisson 9/5 fráköst, Elvar Sigurðsson 6, Ólafur Torfason 6/5 fráköst, Smári Hrafnsson 5, Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson 5/4 fráköst, Andri Þór Skúlason 4/4 fráköst, Daníel Freyr Friðriksson 3.



Stig liða í riðlinum:

1. Njarðvík 8

2. Haukar 6

3. Þór Þ. 2

4. Fjölnir 0



Fyrirtækjabikar karla, C-riðill

Skallagrímur-Hamar 104-92 (29-16, 31-20, 19-32, 25-24)

Skallagrímur: Davíð Ásgeirsson 23/5 fráköst, Egill Egilsson 20/22 fráköst/5 stoðsendingar, Grétar Ingi Erlendsson 20/4 fráköst, Davíð Guðmundsson 19/5 fráköst, Orri Jónsson 17/10 stoðsendingar, Sigursteinn Orri Hálfdánarson 5.

Hamar: Danero Thomas 34/10 fráköst, Bjartmar Halldórsson 16/5 fráköst/16 stoðsendingar/8 stolnir, Bjartmar Halldórsson 15, Aron Freyr Eyjólfsson 10/4 fráköst, Ingvi Guðmundsson 6, Stefán Halldórsson 6/4 fráköst, Mikael Rúnar Kristjánsson 3, Emil F. Þorvaldsson 2.

 

Stig liða í riðlinum:

1. Stjarnan 6

2. Skallagrímur 6

3. KFÍ 4

4. Hamar 0



Fyrirtækjabikar karla, D-riðill

Snæfell-KR 85-87 (19-28, 17-16, 17-23, 32-20)

Snæfell: Zachary Warren 26/9 fráköst/7 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 12, Sigurður Á. Þorvaldsson 11/7 fráköst, Finnur Atli Magnússon 11/5 fráköst, Kristján Pétur Andrésson 10/4 fráköst, Stefán Karel Torfason 4, Sveinn Arnar Davíðsson 4/6 fráköst/6 stoðsendingar, Hafþór Ingi Gunnarsson 3, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 2, Snjólfur Björnsson 2.

KR: Brynjar Þór Björnsson 19, Magni Hafsteinsson 18/6 fráköst, Pavel Ermolinskij 17/10 fráköst/9 stoðsendingar, Helgi Már Magnússon 15/8 fráköst, Darri Hilmarsson 14, Þorgeir Kristinn Blöndal 2, Martin Hermannsson 2.

Stig liða í riðlinum:

1. KR 8

2. Snæfell 6

3. ÍR 2

4. Breiðablik 0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×