Körfubolti

Magnús Þór handarbrotinn og verður lengi frá

Keflvíkingar urðu fyrir miklu áfalli í gær er fyrirliði liðsins, Magnús Þór Gunnarsson, handarbrotnaði.

Fastlega er búist við því að Magnús verði frá í sex til átta vikur vegna meiðslanna að því er fram kemur á heimasíðu Keflavíkurliðsins.

Þar segir einnig að það muni koma í ljós á næstu dögum hvort Magnús þurfi að fara í aðgerð vegna meiðslanna.

Hvað svo sem verður er ljóst að Keflvíkingar verða að komast af án Magnúsar næstu vikurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×