Körfubolti

KR-ingar kanalausir í Hólminum í kvöld - Atupem fann sér annað lið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR.
Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR. Mynd/Daníel
Bandaríski framherjinn Shawn Atupem hefur spilað sinn síðasta leik með KR í Dominos-deild karla í körfubolta en þetta staðfesti Finnur Freyr Stefánsson þjálfari KR í samtali við Karfan.is í kvöld.

Shawn Atupem verður því ekki með í stórleik kvöldsins þar sem KR-ingar heimsækja Snæfellinga í Stykkishólm.

KR-ingar hafa unnið tvo fyrstu leiki sína með Shawn Atupem innanborðs en þessi öflugi leikmaður var með 23,0 stig og 5,5 fráköst að meðaltali á 27,5 mínútum í leik og nýtti þá 65 prósent skota sinna.

Atupem vildi sjálfur losna því hann er búinn að semja við annað lið í Evrópu og það er óhætt að segja að tímasetningin sé afar slæm fyrir Finn og lærisveina hans.

Martin Hermannsson er einnig tæpur fyrir leikinn í kvöld vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn ÍR á dögunum. Það reynir því á leikmannahóp KR-inga í þessum leik í Hólminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×