Körfubolti

Elvar á leið til Bandaríkjanna

Elvar Friðriksson.
Elvar Friðriksson.
Hinn magnaði leikmaður Njarðvíkur, Elvar Már Friðriksson, er að spila sitt síðasta tímabil fyrir Njarðvík því hann er á leið til Bandaríkjanna í nám næsta haust.

Elvar hefur ákveðið að taka boði LIU-skólans sem er í Brooklyn-hverfinu í New York. Elvar heimsótti skólann á dögunum skrifaði svo í kjölfarið undir að því er fram kemur á heimasíðu Víkurfrétta.

„Ég er ofsalega ánægður með þetta. Ég tel að þetta eigi eftir að henta mér vel þar sem þeir spila evrópskan körfubolta, sem er mjög hraður. Aðstæðan er líka til fyrirmyndar í skólanum," sagði Elvar við Víkurfréttir.

Hann hefur farið mikinn með liði Njarðvíkur í verður mikill söknuður af honum úr íslenska boltanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×