Körfubolti

Elvar á leið til Bandaríkjanna

Elvar Friðriksson.
Elvar Friðriksson. mynd/vilhelm
Einn besti leikmaður Dominos-deildar karla, Njarðvíkingurinn Elvar Friðriksson, mun á morgun halda út til New York.

Þar mun hann funda í annað sinn við skóla í borginni að því er karfan.is greinir frá.

Að þessu sinni mun ræða við þjálfara LIU Brooklyn-skólans en þeir eru erkifjendur St. Francis-skólans, sem Elvar hotti á dögunum.

Elvar hyggur á nám í Bandaríkjunum á næsta ári og verður ekki í miklum vandræðum með að finna sér skóla ef hann heldur áfram að spila eins og hann hefur gert í upphafi leiktíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×