Körfubolti

Þriðji sigur Snæfellinga í röð - úrslit kvöldsins í körfunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Ólafur Jónsson.
Jón Ólafur Jónsson. Mynd/Daníel
Snæfell fagnaði sínum þriðja sigri í röð í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið vann sextán stiga sigur á nýliðum Vals, 107-91, á heimavelli sínum í Stykkishólmi.  

Snæfellsliðið fór alla leið upp í þriðja sætið með þessum sigri en Valsmenn eru áfram á botninum. Stjarnan vann öruggan sigur á ÍR í hinum leik kvöldsins en Garðbæingar eru í áttunda sæti.

Chris Woods átti stórleik og skoraði 42 stig fyrir Val en það dugði ekki Hlíðarendaliðinu sem réðu lítið við leikstjórnda Snæfells, Vance Cooksey. Cooksey var með 38 stig, 6 fráköst og 7 stoðsendingar í leiknum í kvöld.

Reynsluboltarnir Jón Ólafur Jónsson og Sigurður Þorvaldsson áttu líka góðan leik, Jón Ólafur skoraði 22 stig og Sigurður var með 20 stig en báðir hittu mjög vel.

Rúnar Ingi Erlingsson var með 15 stig og 5 stoðsendingar hjá Val og Gunnlaugur Elsusn skoraði 15 stig og tók 5 fráköst á 22 mínútum.

Snæfell tapaði þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum á tímabilinu en Ingi Þór Steinþórsson og lærisveinar hans hafa fundið taktinn í síðustu leikjum sínum.

Sbæfellsliðið skoraði 38 stig í fyrsta leikhluta og var þá komið tíu stigum yfir. Hólmarar voru síðan 59-43 yfir í hálfleik.

Hér fyrir neðan má sjá úrslit og stigaskor leikmanna í leikjum kvöldsins.



 

Snæfell-Valur 107-91 (38-28, 21-15, 19-21, 29-27)

Snæfell: Vance Cooksey 38/6 fráköst/7 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 22/5 fráköst, Sigurður Á. Þorvaldsson 20/7 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 9/6 stoðsendingar, Finnur Atli Magnússon 5/6 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 5/7 fráköst, Stefán Karel Torfason 5, Kristján Pétur Andrésson 3.

Valur: Chris Woods 40/9 fráköst, Rúnar Ingi Erlingsson 17/5 stoðsendingar, Gunnlaugur H. Elsuson 15/5 fráköst, Birgir Björn Pétursson 9/10 fráköst, Ragnar Gylfason 3, Oddur Ólafsson 3/5 stoðsendingar, Benedikt Skúlason 2, Oddur Birnir Pétursson 2.



Stjarnan-ÍR 89-61 (25-10, 19-20, 24-16, 21-15)

Stjarnan: Dagur Kár Jónsson 22/5 stoðsendingar, Matthew James Hairston 18/16 fráköst/3 varin skot, Justin Shouse 17/10 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 16/12 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 9, Fannar Freyr Helgason 5/11 fráköst/3 varin skot, Tómas Þórður Hilmarsson 2/8 fráköst..

ÍR: Sveinbjörn Claessen 11/6 fráköst, Matthías Orri Sigurðarson 11/7 fráköst/5 stoðsendingar, Calvin Lennox Henry 11/8 fráköst/5 varin skot, Hjalti Friðriksson 10/5 fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 9/6 fráköst, Ragnar Örn Bragason 5, Þorgrímur Kári Emilsson 2/6 fráköst/3 varin skot, Friðrik Hjálmarsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×