Lifir rúgbrauðið af? Finnur Thorlacius skrifar 18. desember 2013 15:00 Volkswagen rúgbrauð er ennþá framleiddur í Brasilíu.
Fyrir nokkrum mánuðum síðan var tilkynnt um endalok framleiðslu á lífseigasta bíl sem framleiddur hefur verið, Volkswagen rúgbrauðinu. Hann er ennþá framleiddur í Brasilíu og nær framleiðsla hans nú til 63 ára, svo til óbreyttur að ytra útliti. Framleiðslan átti að hætta nú við lok árs. Ástæðan fyrir dauða hans var gefin upp sú að hann stæðist ekki lengur öryggiskröfur í Brasilíu. Nú hefur ef til vill rofað aftur til fyrir rúgbrauðið því í Brasilíu hafa menn nú fundið út að bíllinn falli hvorki undir það að vera „car“ né „truck“, heldur eigi engan sinn líkan og enga samkeppni í öðrum líkum bíl. Þetta mætti flokka undir hártoganir en brasilísk yfirvöld virðast vera að hlusta og líklegt er nú að þau muni veita undanþágu fyrir rúgbrauðið og það haldi því áfram í framleiðslu. Til stóð að framleiða síðustu 600 eintökin í viðhafnarútgáfu en eftirspurnin eftir þeim eintökum var svo mikil að nú hefur verið ákveðið að framleiða 1.200 eintök. Endanleg ákvörðun um undanþágu eða ekki verður tekin 23. desember.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent