Körfubolti

Pálmi hættur með Skallagrím

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Pálmi Þór.
Pálmi Þór. Mynd/Vilhelm
Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari karlaliðs Skallagríms í körfuknattleik undanfarin 3 og hálft ár, hefur að ósk stjórnar körfuknattleiksdeildarinnar látið af störfum.

Í tilkynningu frá stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms þakkar hún honum ómetanleg störf undanfarin ár, m.a. við að koma Skallagrím að nýju í hóp þeirra bestu. Þar segir að Pálmi muni áfram koma að þjálfun yngri flokka hjá félaginu og sé ómetanlegt og sínir vel hvaða mann Pálmi hefur að geyma.

Þeir Finnur Jónsson aðstoðarþjálfari Skallagríms og Páll Axel Vilbergsson munu stjórna liði Skallagríms í þeim leikjum sem eftir eru fram að jólum, ekki hefur verið tekin ákvörðun varðandi framhaldið að þeim leikjum loknum.

Skallagrímur er í 9.-11. sæti deildarinnar með 4 stig eftir níu leiki.

Nánar á heimasíðu Skallagríms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×