Retro Stefson með platínuplötu Jakob Bjarnar skrifar 30. desember 2013 09:31 Retro Stefson veitir viðtöku platínuplötu sem þýðir að 10 þúsund eintök eru seld.
Í kvöld heldur hljómsveitin hinn árlega Síðasta Sjens í Valsheimilinu að Hlíðarenda. Þetta er í 5. skipti sem Sjensinn er haldinn og eru Retro Stefson-liðar á því að þetta séu skemmtilegustu tónleikar ársins. Haraldur Ari Stefánsson mun stíga á stokk með félögum sínum en hann hefur lagt stund á leiklistarnám í London. „Það er bara heldur fátt um fína drætti þegar kemur að húsum til tónleikahalds þegar yfir 500 manns ætla að mæta. Það er eiginlega bara Harpa eða Harpa. Valdheimilið er gott hús fyrir tónleika - besti kosturinn fyrir Síðasta Sjens!“ segir Grímur Atlason, en hann er umboðsmaður hljómsveitarinnar. Á Þorláksmessu tóku Retro Stefson liðar við platínumplötu í versluninni Macland við Laugaveg í tilefni af því að plata þeirra Retro Stefson hefur nú selst í yfir 10.000 eintökum á Íslandi. „Enda langbesta bandið,“ segir Grímur umboðsmaður, ánægður með sitt fólk. Retro Stefson hefur ferðast um heiminn með litlum hléum frá vorinu 2011 er hljómsveitin fluttist til Berlínar. Hljómsveitin hefur á þessum tíma spilað á yfir 300 tónleikum! „Höfuðáttirnar fjórar eru þrjár: Retro Stefson,“ segir Grímur. Auk Retro Stefson koma fram Hermigervill og Sísý Ey. Bæði Hermigervill og Sísý Ey munu koma fram á Eurosonic hátíðinni í Hollandi um miðjan janúar. Sísý Ey halda í framhaldinu á By:Larm hátíðina í Osló í febrúar. Miðasala er á midi.is og í Vodafonehöllinni í kvöld. Húsið opnar klukkan 21 og tónleikarnir hefjast klukkan 22.
Mest lesið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira