Körfubolti

Sjóðandi heitur fyrir utan 3ja stiga línuna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Ólafur Jónsson mátti ekki frá frítt skot í fyrri hlutanum.
Jón Ólafur Jónsson mátti ekki frá frítt skot í fyrri hlutanum. Mynd/Stefán
Jón Ólafur Jónsson, leikmaður Snæfells, var í gær valinn besti leikmaðurinn í fyrri umferð Dominos-deildar karla en Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, var við sama tilefni kosinn besti þjálfarinn.

Jón Ólafur var með 22,1 stig og 9,1 frákast að meðaltali í leik í leikjunum ellefu í fyrri hlutanum og Snæfellsliðið vann átta þeirra. Jón Ólafur var sjóðandi heitur fyrir utan þriggja stiga línuna en hann nýtti yfir 60 prósent þriggja stiga skota sinna í fyrri umferðinni (31 af 51).

Hittni Jóns Ólafs fyrir utan þriggja stiga línuna átti þátt í mörkum sigurleikjum Hólmara en hann var með 67 prósenta þriggja stiga nýtingu og þrjá þrista að meðaltali í leik í sigurleikjunum.

Benedikt Guðmundsson stýrði Þórsliðinu til sigurs í 8 af 11 leikjum í fyrri umferðinni.

Justin Shouse í Stjörnunni, Samuel Zeglinski í Grindavík, Darrel Lewis í Keflavík og Marvin Valdimarsson úr Stjörnunni voru valdir í úrvalsliðið ásamt Jóni. Sigmar Egilsson í Skallagrími var kosinn dugnaðarforkurinn og Sigmundur Már Herbertsson var valinn besti dómarinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×