Þú hefur verið valin 4. apríl 2013 07:00 Tryggvadóttir!" Sagði einkennisklædd konan þegar hún ég rétti henni skilríkin eins og hún hafði beðið mig um. Ég játti því þótt hún hafi hálfpartinn ekki ætlast til svars. Hún hallaði sér að samstarfskonu sinni með orðunum: „Þetta er konan!" Sú tók við skilríkjunum mínum og flugmiðanum og bað mig að gjöra svo vel að fylgja sér. Ég elti hana auðvitað eins og hlýðinn hundur og hjartað hamaðist í brjóstinu. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið. „Þú hefur verið valin í öryggisleit," sagði hún mér meðan hún teymdi mig á bak við spjald til hliðar við röðina. Þar beið fleira einkennisklætt fólk og fyrir því kynnti hún mig með sömu orðum og hin hafði gert: „Þetta er konan." Fyrr um daginn höfðum við hjónin reynt að tékka okkur inn í flugið á netinu. Hann gat það en ekki ég. Þegar ég hringdi til að vita hvað olli fletti sú í símanum nafninu mínu upp, Tryggvadóttir? Svo kom smá þögn. „Jaá, heyrðu, hafðu engar áhyggjur af þessu Ragnheiður. Þú tékkar þig bara inn hér á vellinum." Nú skildi ég af hverju, ég hafði verið „valin". Þar sem ég stóð skjálfandi bak við spjaldið bað eldri kona mig vinsamlegast um að afhenda sér handtöskuna sem ég ríghélt í. Ég gerði það. Svo sagði hún eitthvað meira, sem ég í angist minni heyrði ekki svo hún þurfti að endurtaka það. Viltu fara úr yfirhöfninni, Ragnheiður! Ég gerði það. Ég reyndi að afsaka fátið á mér með einhverri aulafyndni meðan hún fór gegnum hólf og vasa en henni stökk ekki bros. Hjartað barðist enn hraðar, hvað fyndi hún í töskunni minni? Hún fann ekkert og sneri sér því næst að mér sjálfri. Ég rétti þegjandi út þá skanka sem hún bað um og hún leitaði af sér allan grun. Ég var enn svo stressuð þegar þessu lauk, eða svo fegin, að hún þurfti aftur að endurtaka það sem hún sagði: „Þú mátt fara í yfirhöfnina, Ragnheiður. Taktu töskuna þína." Eldrauð í kinnum hraðaði ég mér fram fyrir spjaldið og fór aftur í röðina. Ég fann augu allra hvíla á mér meðan ég reyndi skjálfhent að koma mér í kápuna. Ég vissi alveg hvað þau voru að hugsa: Þetta er konan. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnheiður Tryggvadóttir Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun