Bliki í þrjár klukkustundir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. ágúst 2013 11:00 Það er erfitt að útskýra það og ég hef á tilfinningunni að maður megi ekki segja það. Maður gæti verið stimplaður þjóðernissinni, orð sem fólk hefur ólíkan skilning á en yfirleitt neikvæðan, eða þá væminn. En stundum er maður ótrúlega stoltur yfir því að vera Íslendingur. Í rigningu, roki og skítakulda var flautað til loka venjulegs leiktíma á Laugardalsvelli á fimmtudagskvöldið. Karlalið Breiðabliks í knattspyrnu hafði unnið 1-0 sigur á sterkasta liði Kasakstans og jafnaði metin í einvígi liðanna eftir 1-0 tap ytra. Leikmenn réðu ráðum sínum, klæddu sig í úlpur og hlustuðu á þjálfara sinn enda framlenging fram undan. Fólk í stúkunni nuddaði lærin vegna kuldans, brosti vandræðalega hvert til annars og vissi ekki almennilega hvernig það átti að haga sér. Þá byrjaði lag að hljóma. Íslenskara gat það ekki verið. Þorparinn með Pálma Gunnars. Ég veit ekki hvað það var en í nokkrar sekúndur leið mér yndislega í skítakuldanum á Laugardalsvelli. Fulltrúar litla Íslands áttu í fullu tré við frambærilegasta atvinnumannalið sautján milljóna manna þjóðar úr fjarlægum heimi. Týpísk íslensk minnimáttarkennd, en hvað sem því líður var tilfinningin góð. Þótt „aðeins“ 2.500 manns hafi mætt í Dalinn á risaleikinn þá létu vallargestir vel í sér heyra og eftir því sem spennan og vonin varð meiri fjölgaði Blikunum. Jú, einhverjir bættust í hópinn þegar byrjað var að hleypa frítt inn en eftir því sem áhorfendur urðu stoltari af strákunum inni á vellinum leyfðu þeir sér að hrópa og kalla í takt við harðasta kjarna stuðningsmannanna. Í nokkrar mínútur studdu allir vallargestir þá grænu og hvítu (svörtu). Á kvöldi sem þessu eru nefnilega allir íslenskir knattspyrnuunnendur Blikar. Svo fór að Blikar urðu að játa sig sigraða eftir dramatíska vítaspyrnukeppni. Hver Blikinn á fætur öðrum reyndi sig gegn markverði gestanna sem skellti í lás. Hetjulegri baráttu gegn atvinnumönnunum úr hinum enda álfunnar var lokið. Blikar lutu höfði, svekkelsið var mikið en innst inni vissu leikmennirnir og allir aðrir á Laugardalsvelli að Blikar höfðu staðið sig vel. Leikmennirnir voru stoltir þótt hundfúlir væru. Sömu sögu var að segja um stolta landa þeirra í stúkunni óháð því hvaða lið þeir allajafna hvetja til dáða. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bakþankar Kolbeinn Tumi Daðason Tengdar fréttir Hvað finnst þér um byssur? Ferðalög til útlanda eru sjaldan jafnvel heppnuð og þegar maður sækir góða vini heim. Á framandi stöðum er gott að eiga góða að. 26. júlí 2013 08:00 Hvers virði eru launin? Eru launin ekki miklu lægri?“ er spurning sem ég fæ reglulega frá fólki þegar það heyrir að ég hafi sagt upp starfi mínu sem byggingaverkfræðingur og sinni nú íþróttafréttamennsku. 12. júlí 2013 06:00 Mest lesið Svar við grein Dagnýjar Hængsdóttur Köhler Ragnheiður Magnúsdóttir,Halldóra Jónsdóttir,Óskar Þór Karlsson,Eiríkur Böðvarsson Skoðun Eflum málumhverfi barna Bjarnfríður Leósdóttir,Harpa Stefánsdóttir,Hildur Rut Sigurbjartsdóttir,Silja Jóhannsdóttir,Þorbjörg Saga Ásgeirsdóttir Skoðun Hvernig getur NATO verið, eða hafa verið, flott og fínt, en ESB slæmt? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Aðgengismál í HÍ – Háskóli fyrir öll? Styrmir Hallsson Skoðun Cześć Polskiej części VR Agata Maria Magnússon,Norbert Gruchociak Skoðun Björn til rektors Benedikt Hjartarson Skoðun Örugg skref fyrir Ísland í alþjóðasamfélaginu Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Skipulagsslys í Garðabæ Aðalsteinn Árni Baldursson Skoðun Yfir til ykkar, VR-ingar! Halla Gunnarsdóttir Skoðun Sálfélagslegt öryggi – lykillinn að árangri og hagkvæmni Andri Hauksteinn Oddsson Skoðun
Hvað finnst þér um byssur? Ferðalög til útlanda eru sjaldan jafnvel heppnuð og þegar maður sækir góða vini heim. Á framandi stöðum er gott að eiga góða að. 26. júlí 2013 08:00
Hvers virði eru launin? Eru launin ekki miklu lægri?“ er spurning sem ég fæ reglulega frá fólki þegar það heyrir að ég hafi sagt upp starfi mínu sem byggingaverkfræðingur og sinni nú íþróttafréttamennsku. 12. júlí 2013 06:00
Svar við grein Dagnýjar Hængsdóttur Köhler Ragnheiður Magnúsdóttir,Halldóra Jónsdóttir,Óskar Þór Karlsson,Eiríkur Böðvarsson Skoðun
Eflum málumhverfi barna Bjarnfríður Leósdóttir,Harpa Stefánsdóttir,Hildur Rut Sigurbjartsdóttir,Silja Jóhannsdóttir,Þorbjörg Saga Ásgeirsdóttir Skoðun
Svar við grein Dagnýjar Hængsdóttur Köhler Ragnheiður Magnúsdóttir,Halldóra Jónsdóttir,Óskar Þór Karlsson,Eiríkur Böðvarsson Skoðun
Eflum málumhverfi barna Bjarnfríður Leósdóttir,Harpa Stefánsdóttir,Hildur Rut Sigurbjartsdóttir,Silja Jóhannsdóttir,Þorbjörg Saga Ásgeirsdóttir Skoðun