Smíðar bekki úr lerki Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 16. september 2013 12:00 Georg Pétur Ólafsson húsgagnasmiður smíðar bekki úr íslensku lerki. Mynd/Valli
Georg Pétur Ólafsson húsgagnasmiður smíðar bekki úr íslensku lerki en hann segir lerkið henta sérstaklega vel í útihúsgögn. Það sé synd að stór hluti þess sem grisjað er í íslenskum lerkiskógum endi í brennsluofni. Það er gaman að geta nýtt innlent hráefni en ég las einmitt í Bændablaðinu um daginn að lerkiskógarnir fyrir austan væri orðnir góðir til nytja. Það er því synd að megnið af því lerki sem grisjað er á landinu fer í brennslu í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Almennt er fólk þó að átta sig á því að nýta hráefni úr héraði, til dæmis í matargerð. Því ekki í aðra framleiðslu líka?“ segir Georg Pétur Ólafsson húsgagnasmiður, en Georg smíðaði nokkra bekki úr íslensku lerki fyrir móður sína, sem enduðu óvænt á sýningu í sumar. „Það lá beinast við að smíða bekkina úr íslensku lerki. Mamma er listakona og bað mig um að smíða eitthvað fyrir sig undir hlutina hennar á sýningunni Matur er manns gaman, í Gallerí Leir7 í Stykkishólmi, en hún smíðar alla sína muni úr íslenskum viði. Verkefnið vatt upp á sig og á endanum stóðu bekkirnir sem sjálfstæðir hlutir á sýningunni,“ segir Georg. Bekkir Georgs vöktu athygli á sýningunni og seldust reyndar allir nema einn. Þann bekk nýtir Georg heima hjá sér í garðinum en hann segir íslenska lerkið sérstaklega góðan efnivið í útihúsgögn. „Bekkina er bæði hægt að nota úti og inni en lerkið ver sig einstaklega vel utanhúss. Það gránar eins og annar viður en fúnar miklu hægar út af kvoðunni sem í því er og endist því í fjölda ára. Lerkið er hart að vinna úr en með nútímagræjum er vel hægt að smíða úr því,“ segir Georg. „Auðvitað væri gaman að búa til eigin vörulínu,“ bætir hann við en eftir sýninguna í Stykkishólmi fékk hann þó nokkrar pantanir sem hann smíðar þegar hann á lausa stund.
Mest lesið „Eru þær í alvöru tvíburar?“ Lífið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Bíll, belja og Bandaríkjaforseti Lífið Kórstjórinn sem ól upp kynslóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjartalaus skóli“ Lífið Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Laufey „splittaði G-inu“ á tónleikum í Dublin Lífið Gimpið í Pulp Fiction er látið Lífið Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Fleiri fréttir Slakur með 62 milljón króna hálsmen Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira