Piparjónkudagarnir að baki Sara McMahon skrifar 29. október 2013 07:00 Ég á vinkonu sem er svo óheppin að vera einhleyp, eða Jónka, eins og ég kýs að kalla hana. Þrátt fyrir að vera stanslaust á ferðinni hefur henni ekki tekist að fá karlmann til að heillast af sér. Líkt og gefur að skilja þykir henni þetta miður og leitaði hún ráða til mín, enda tókst mér hið ómögulega; að fá karlmann til að falla fyrir töfrum mínum. Ég var öll af vilja gerð því ég vil ekki fyrir nokkra muni að Jónkan verði karlmannslaus út ævina. Ég lagðist því í mikla rannsóknavinnu og þetta er það sem ég hafði upp úr krafsinu: Brostu! Karlmenn laðast aðeins að brosmildum konum og því eiga einhleypar konur að vera síbrosandi. Bros sem færist hægt og laumulega yfir andlitið þykja sérlega aðlaðandi, og ekki skemmir fyrir ef konan roðnar örlítið um leið. Ekki gefa of mikið af þér! Karlmenn eiga erfitt með að halda athyglinni í lengri tíma og því verða einhleypar konur að passa upp á að ofbjóða þeim ekki með masi. Láttu hann alltaf senda síðasta smáskilaboðið, skráðu þig alltaf út af samskiptamiðlum á undan honum og síðast en ekki síst, gangtu burt í miðju samtali! Þannig fær hann aldrei nóg af þér. Gerðu hann öfundsjúkan! Karlmenn eru með mikið keppnisskap og vilja því ekki konur sem aðrir karlmenn vilja ekki. Þessi fullyrðing kann að hljóma undarlega en er í raun ósköp einföld. Ýttu undir keppnisskap skotsins þíns með því að daðra linnulaust við aðra karlmenn. Vertu aðlaðandi! Ekki víla fyrir þér að breyta útliti þínu til að þóknast skotinu. Ef hann er veikur fyrir rauðhærðum konum, litaðu hár þitt rautt! Strax! Gramsaðu eftir lyklunum hans! Þessi síðasti punktur er sérlega mikilvægur! Karlmenn elska óvænta snertingu, sér í lagi ef hún kemur frá aðlaðandi og brosmildri konu með rautt hár. Stingdu höndinni í vasa hans og gramsaðu eftir lyklum, snertingin mun koma honum á óvart og hann mun endanlega falla fyrir þér. Nú þarf engin kona að vera pipra framar, nema hún hafi gerst svo kærulaus og gleymt að leggja á minnið hin fimm einföldu skref um hvernig megi halda athygli kærastans til langtíma. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sara McMahon Mest lesið Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun Af hverju fjölgar öryrkjum? Svarið er ekki það sem þú heldur Sisa Berglind Kristjánsdóttir Skoðun Þegar Bítlakynslóðin verður gömul Gunnar Salvarsson Skoðun Síðustu vígi vísdómsins Sigurður Ingvarsson Skoðun Með sniglaslím í andlitinu Karl Pétur Jónsson Skoðun Sykursýki 2 orðin að heimsfaraldri Anna Lind Fells Skoðun Íslenskt rafmagn á alþjóðlegum markaði Tinna Traustadóttir Skoðun Þar sem er reykur, þar er eldur Helgi Áss Grétarsson Skoðun Gagnrýnda kynslóðin og glötuðu kennararnir Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Úkraína - 24. febrúar 1956 og 2022 Erlingur Hansson Skoðun
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun