Tuttugu ár af tónlist Gunnar Leó Pálsson skrifar 14. desember 2013 13:00 Mugison- Haglél 32.000 eintök árið 2011. Söluhæstur með stakan titil.
Plötusala á Íslandi hefur verið reikandi á milli ára en þó hefur sala á íslenskum titlum að mestu haldist óbreytt undanfarin ár. Fréttablaðið fór á stúfana og kannaði plötusölu á Íslandi síðastliðin tuttugu ár. Fyrir tuttugu árum var tónlistarlífið á Íslandi virkilega blómlegt og fjölbreytt. Fjölmargar tímamótaplötur komu út og margar þeirra hafa staðist tímans tönn með miklum sóma. Stærsta nafn íslenskrar tónlistarsögu á alþjóðavísu, Björk, gaf árið 1993 út sína fyrstu stóru plötu sem ber nafnið Debut og fór hún sigurför um heiminn. Bubbi Morthens var ákaflega virkur og gaf út plötuna Lífið er ljúft, ásamt því að gefa út plötuna Svefnvana með hljómsveit sinni og Rúnars Júlíussonar, GCD. Landslið poppara var einnig afkastamikið á árinu en Páll Óskar, Stjórnin, Todmobile, Ný dönsk og fleiri gáfu út plötur þetta ár. „Það sem er forvitnilegt er það að plötusala er mjög svipuð í dag og árið 1993 en hún náði hámarki árið 2005,“ segir Jónatan Garðarsson tónlistarsérfræðingur og rokksögukennari. Sala á plötum, til dæmis árið 2011 og 2012 er ekki jafn dreifð og hún var á árum áður, líkt og Mugison og Ásgeir Trausti sanna. Árið 1993 var algengt að listamenn væru að selja um fimm þúsund eintök, sem gefur gullplötur. „Þetta ár fóru ellefu plötur í gull,“ bætir Jónatan við. Heildarplötusalan var um þrjú hundruð þúsund eintök en einungis þrjátíu prósent af sölunni voru íslenskar plötur. Kristján Jóhannsson seldi flest eintök af plötunni sinni, Af lífi og sál, þetta ár eða um fimmtán þúsund eintök en rétt á eftir honum kom Bubbi Morthens með þrettán þúsund eintök seld af plötunni Lífið er ljúft. Plöturnar Debut með Björk, Spillt með Todmobile, Desember með Siggu Beinteins og Ekki þessi leiðindi með Bogomil Font og Milljónamæringunum seldust í um sjö þúsund eintökum þetta ár.Kristján Jóhannsson- Af lífi og sál 15.000 eintök árið 1993Árið 2005 var metsöluár í plötusölu á Íslandi, en þá var heildarplötusalan 820 þúsund eintök og hlutfallið af því var 55 prósent íslenskt efni og 45 prósent erlent efni. Mest seldu plöturnar voru plata Garðars Thors Cortes, sem er honum samnefnd, og platan Þú átt mig ein með Óskari Péturssyni Álftagerðisbróður, en þær seldust báðar í fimmtán þúsund eintökum. Björgvin Halldórsson seldi tólf þúsund eintök af plötunni Ár og öld og þá seldi Sigur Rós tíu þúsund eintök af plötunni Takk.Ásgeir Trausti – Dýrð í dauðaþögn 23.000 eintök (komin vel yfir 30.000 í dag)Árið 2012 var heildarplötusalan um þrjú hundruð þúsund eintök sem telst ansi lítið, en með tilkomu Spotify og annarra tónlistarveitna hefur plötusala dregist mikið saman. Íslensk tónlist var rúmlega áttatíu prósent seldrar tónlistar. Ásgeir Trausti seldi 23 þúsund eintök af plötu sinni Dýrð í dauðaþögn en hún er komin vel yfir þrjátíu þúsund eintök í dag. Of Monsters and Men seldi ellefu þúsund eintök af plötunni My Head Is an Animal en það er þó athyglisvert að hún kom út árið 2011. Retro Stefson seldi 7.500 eintök af samnefndri plötu og Helgi Björnsson seldi fimm þúsund eintök af plötunni Heim í Heiðardalinn.Baggalútur-Mamma þarf að djamma 6.000 eintök árið 2013Í ár tróna Baggalútsmenn á toppnum með plötuna Mamma þarf að djamma, en sem stendur hafa um sex þúsund eintök selst. Plötur Of Monsters and Men og Ásgeirs Trausta eru komnar yfir fimm þúsund seld eintök á árinu. Aðrar plötur sem seljast vel í ár eru platan Jólakveðja sem Sigríður Thorlacius sendi frá sér, Kaleo með samnefndri hljómsveit og Helgi syngur Hauk með Helga Björnssyni.Bubbi Morthens – Lífið er ljúft 13.000 eintökSamantekt á milli ára: Árið 1993Kristján Jóhannsson - Af lífi og sál 15.000 eintökBubbi Morthens – Lífið er ljúft 13.000 eintökTodmobile – Spillt, Björk – Debut, Sigga Beinteins – Desember, Bogomil Font og Milljónamæringarnir – Ekki þessi leiðindi um 7.000 eintök. KK band – Hotel Föroyar 6.000 eintök.Stefán Hilmarsson – Líf, Ný dönsk – Hunang 4.000 eintökJet Black Joe – You Ain‘t here 3.000 eintökGarðar Thor Cortes- Cortes 15.000 eintök árið 2005Árið 2005Garðar Thor Cortes – Cortes 15.000 eintökÓskar Pétursson – Þú átt mig ein 15.000 eintökBjörgvin Halldórsson – Ár og öld 12.000 eintökSigur Rós – Takk 10.000 eintökHelgi Björns – Yfir Esjuna 10.000 eintökÍrafár – Írafár 9.000 eintök Árið 2011Mugison – Haglél 32.000 eintökOf Monsters and Men- My Head Is An Animal 11.000 (Platan kom samt út arið 2011 en er samt næst mest selda platan árið 2012)Árið 2012Ásgeir Trausti – Dýrð í dauðaþögn 23.000 eintök (komin vel yfir 30.000 í dag)Of Monsters and Men – My Head Is An Animal 11.000 eintök (platan kom út árið 2011 en er samt næstmest selda platan árið 2012Retro Stefson – Retro Stefson 7.500 eintökHelgi Björns – Heim í heiðardalinn 5.000 eintökMinningartónleikar um Ellý Vilhjálms 4.700 eintökRaggi Bjarna – Dúettar 4.400 eintökSigur Rós – Valtari 4.300 eintökSkálmöld – Börn Loka 4.300 eintök Það sem af er árinu 2013Baggalútur – Mamma þarf að djamma 6.000 eintökOf Monsters and Men og Ásgeir Trausti eru báðar komnar vel yfir 5.000 eintök
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Sjá meira