Týnt tækifæri Ólafur Þ. Stephensen skrifar 31. desember 2013 06:00 Opið hagkerfi, greið milliríkjaviðskipti og alþjóðleg bandalög hafa verið lykillinn að velgengni margra ríkja, ekki sízt þeirra smærri. Víða í ríkjunum sem við berum okkur saman við ríkir nokkuð breið samstaða um utanríkis- og utanríkisviðskiptapólitíkina og það er ein forsenda stöðugleika í efnahagslífinu. Ein ástæðan fyrir því að vinstristjórnin sem hrökklaðist frá völdum síðastliðið vor náði ekki þeim árangri sem hún ætlaði sér var að hún var innbyrðis ósammála um stöðu Íslands á alþjóðavettvangi og stefnuna gagnvart umheiminum. Aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið lentu í ógöngum vegna innbyrðis deilna í stjórninni og fyrir vikið áform um afnám gjaldeyrishafta. Deilur á stjórnarheimilinu stóðu sömuleiðis í vegi fyrir því að mótuð væri skýr stefna um eflingu erlendra fjárfestinga. Og þótt eini flokkurinn, sem hefur á stefnuskrá sinni róttæka uppstokkun á landbúnaðarkerfinu með ofurtollum sínum og viðskiptahindrunum, færi með stjórnarforystuna breyttist ekkert í þeim efnum. Ein ástæðan fyrir því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem tók við völdum eftir kosningar hefur valdið mörgum í viðskiptalífinu vonbrigðum er að stefna hennar er að mörgu leyti sama marki brennd – og kannski var ekki við öðru að búast. Þessir flokkar hafa iðulega dregið fram þjóðernisíhaldið og tortryggnina gagnvart útlöndum hvor í öðrum. Þannig stöðvaði stjórnin aðildarviðræðurnar við ESB. Þar með ýtti hún til hliðar eina raunhæfa planinu sem hefur komið fram um upptöku nýs gjaldmiðils og afnám gjaldeyrishaftanna. Ekkert hefur komið í staðinn. Gjaldeyrishöftin eru orðin mörgum fyrirtækjum fjötur um fót og leiða til þess að sum hátækni- og sprotafyrirtæki flytja höfuðstöðvar sínar og ýmsa starfsemi frá Íslandi. Við erum áfram með hvað mestar hindranir í vegi erlendra fjárfestinga af öllum vestrænum ríkjum. Í landbúnaðarpólitíkinni breytist ekki neitt. Ef eitthvað er bætir nýja ríkisstjórnin um betur í eintrjáningshættinum með sínum „þjóðmenningarlegu“ áherzlum. Í huga forsætisráðherrans kemur hin séríslenzka „róttæka rökhyggja“ Framsóknarflokksins í stað ráðgjafar frá hinum og þessum skammstöfunum í hópi alþjóðastofnana. Framsóknarmenn eru klárari en sérfræðingar AGS og OECD. Það er gott að hafa trú á sjálfum sér. Og margt hefur nýja ríkisstjórnin gert vel til að efla atvinnulífið og þar með byggja undir framtíðarlífskjör Íslendinga, til að mynda að byrja að létta af atvinnurekstri álögum og einfalda skatta- og lagaumhverfi hans. Það breytir ekki því að íslenzkt atvinnulíf þarf traustari alþjóðlega umgjörð, þar með talinn stöðugan, alþjóðlegan gjaldmiðil. Tækifærinu til að byggja upp slíkt umhverfi hefur nýja ríkisstjórnin vísvitandi týnt – og ekkert bendir til að hún hyggist leita að því á nýja árinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið Ef Veðurstofan spáði vitlausu veðri í 40 ár, væri það bara í lagi? Björn Ólafsson Skoðun Heimaþjónusta og velferðartækni: Lykillinn að sjálfbæru heilbrigðiskerfi Auður Guðmundsdóttir Skoðun Krónan, Nettó, Hagkaup, Bónus - það er kominn tími á formlega sniðgöngu Helen Ólafsdóttir Skoðun Hvers vegna skipta hagsmunir verslanakeðja meira máli en öryggi barna í Ásahverfi Reykjanesbæ? Ólafur Ívar Jónsson Skoðun Til varnar jafnlaunavottun Magnea Marinósdóttir Skoðun „Finnst ykkur skrýtið að ég mæti á Austurvöll – Pabba mínum var fórnað á altari niðurskurðar“ Davíð Bergmann Skoðun Sjókvíaeldi á Íslandi fjarstýrt með gervigreind frá Noregi Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Um þjóð og ríki Gauti Kristmannsson Skoðun Það sem ekki má segja um það sem enginn vill sjá Viðar Hreinsson Skoðun Hægri sósíalismi Jón Ingi Hákonarson Skoðun
Heimaþjónusta og velferðartækni: Lykillinn að sjálfbæru heilbrigðiskerfi Auður Guðmundsdóttir Skoðun
Hvers vegna skipta hagsmunir verslanakeðja meira máli en öryggi barna í Ásahverfi Reykjanesbæ? Ólafur Ívar Jónsson Skoðun
„Finnst ykkur skrýtið að ég mæti á Austurvöll – Pabba mínum var fórnað á altari niðurskurðar“ Davíð Bergmann Skoðun
Heimaþjónusta og velferðartækni: Lykillinn að sjálfbæru heilbrigðiskerfi Auður Guðmundsdóttir Skoðun
Hvers vegna skipta hagsmunir verslanakeðja meira máli en öryggi barna í Ásahverfi Reykjanesbæ? Ólafur Ívar Jónsson Skoðun
„Finnst ykkur skrýtið að ég mæti á Austurvöll – Pabba mínum var fórnað á altari niðurskurðar“ Davíð Bergmann Skoðun