Körfubolti

Njarðvík og Grindavík fóru illa með nýliðana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson og Elvar Már Friðriksson fóru báðir yfir 20 stigin í kvöld.
Logi Gunnarsson og Elvar Már Friðriksson fóru báðir yfir 20 stigin í kvöld. Mynd/ÓskarÓ
Njarðvík og Grindavík áttu ekki í miklum vandræðum með að vinna nýliða Vals og Hauka í 13. umferð Domnios-deildar karla í körfubolta í kvöld. Njarðvík vann Val með 37 stigum í Ljónagryfjunni og Grindavík vann óvæntan stórsigur á Haukum í Röstinni í Grindavík.

Grindvíkingar mæta af krafti inn í nýja árið og fylgdu eftir sigri á KR í Frostaskjólinu í síðustu umferð með því að vinna 31 stigs sigur á Haukum, 91-60, í Grindavík í kvöld.

Haukar hafa staðið sig vel í deildinni og voru í 6. sæti fyrir þennan leik en þeir áttu aldrei möguleika gegn frábærum Grindvíkingum.

Það voru margir að skila hjá Grindavík í leiknum en atkvæðamestir voru þeir Sigurður Gunnar Þorsteinsson (16 stig, 12 fráköst), Earnest Lewis Clinch Jr. (13 stig og 9 stoðsendingar) og Ómar Sævarsson (12 stig).

Njarðvíkingar hafa unnið tvo plús 30 stiga sigra í fyrstu tveimur leikjum nýja ársins eftir að liðið vann 37 stiga sigur á Val, 112-75, í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld.

Tracy Smith Jr. var með flotta tvennu eins og í fyrsta leiknum en nýi miðherji Njarðvíkingar var með 25 stig og 14 fráköst í kvöld. Logi Gunnarsson skoraði 21 stig fyrir Njarðvík og Elvar Már Friðriksson var með 22 stig og 7 stoðsendingar. 



Grindavík-Haukar 91-60 (27-8, 22-19, 26-18, 16-15)

Grindavík: Sigurður Gunnar Þorsteinsson 16/12 fráköst, Earnest Lewis Clinch Jr. 13/4 fráköst/9 stoðsendingar, Ómar Örn Sævarsson 12/9 fráköst, Þorleifur Ólafsson 8, Jón Axel Guðmundsson 8/5 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 8/5 fráköst/6 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 7/11 fráköst, Kjartan Helgi  Steinþórsson 7, Jens Valgeir Óskarsson 6/5 fráköst, Hinrik Guðbjartsson 4, Nökkvi Harðarson 2.

Haukar: Sigurður Þór Einarsson 14, Haukur Óskarsson 10, Davíð Páll Hermannsson 10/4 fráköst, Kristinn Marinósson 7/4 fráköst, Helgi Björn Einarsson 7/6 fráköst, Steinar Aronsson 4, Þorsteinn Finnbogason 4, Kári Jónsson 2, Svavar Páll Pálsson 2/4 fráköst/5 stoðsendingar.



Njarðvík-Valur 112-75 (29-16, 24-19, 26-17, 33-23)

Njarðvík: Tracy Smith Jr. 25/14 fráköst/3 varin skot, Elvar Már Friðriksson 22/6 fráköst/7 stoðsendingar/5 stolnir, Logi Gunnarsson 21, Maciej Stanislav Baginski 12/5 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 11/7 fráköst, Hjörtur Hrafn Einarsson 9, Ágúst Orrason 9, Friðrik E. Stefánsson 2/5 fráköst, Halldór Örn Halldórsson 1.

Valur: Chris Woods 28/16 fráköst, Birgir Björn Pétursson 14/10 fráköst, Rúnar Ingi Erlingsson 12/6 fráköst, Oddur Ólafsson 4, Ragnar Gylfason 3, Jens Guðmundsson 3, Þorgrímur Guðni Björnsson 3, Benedikt Smári Skúlason 3, Benedikt Blöndal 2, Guðni Heiðar Valentínusson 2, Kristinn Ólafsson 1.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×