Körfubolti

Fimmti sigur Þórs í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs. Mynd/Vilhelm
Þór frá Þorlákshöfn komst upp í þriðja sæti Domino's-deildar karla með átján stiga sigri á KFÍ í kvöld, 108-90.

Þetta var fimmti sigur Þórsara í röð en eftir jafnan fyrri hálfleik náðu heimamenn að stinga af í þeim þriðja. Þór skoraði þá 30 stig gegn aðeins fjórtán frá gestunum sem náðu ekki að brúa bilið eftir það.

Mike Cook skoraði 33 stig fyrir Þór og Nemanja Sovic bætti við 22 stigum. Joshua Brown skoraði 36 stig fyrir KFÍ en það dugði ekki til.

Næstu leikir í deildinni fara fram á fimmtudagskvöldið en þá eru fimm leikir á dagskrá.

Þór Þ.-KFÍ 108-90 (22-20, 25-27, 30-14, 31-29)

Þór Þ.: Mike Cook Jr. 33/5 fráköst, Nemanja Sovic 22/7 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 17/5 fráköst/5 stoðsendingar, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 10/12 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 9, Emil Karel Einarsson 7, Þorsteinn Már Ragnarsson 6/4 fráköst/5 stoðsendingar, Vilhjálmur Atli Björnsson 2, Halldór Garðar Hermannsson 2.

KFÍ: Joshua Brown 36/4 fráköst, Mirko Stefán Virijevic 13/11 fráköst, Ágúst Angantýsson 12/12 fráköst, Jón Hrafn Baldvinsson 9/5 fráköst, Valur Sigurðsson 7, Guðmundur Jóhann Guðmundsson 6, Hraunar Karl Guðmundsson 3, Jóhann Jakob Friðriksson 2, Leó Sigurðsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×