Körfubolti

Hoknir af reynslu, hlaðnir verðlaunagripum en töpuðu samt stórt

Arnar Björnsson skrifar
Sigurður Ingimundarson og Gunnar Einarsson í Breiðholtinu í gærkvöldi.
Sigurður Ingimundarson og Gunnar Einarsson í Breiðholtinu í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm
Það er oft talað um að reynslan skipti máli í íþróttakappleikjum ekki skorti kappana í b-liði Keflavíkur reynsluna þegar þeir freistuðu þess að komast í undanúrslit Powerade-bikarkeppninnar í gærkvöldi.   

Sigurður Ingimundarson, Guðjón Skúlason og fleiri kappar léku gegn ÍR í gærkvöldi.  Gunnar Einarsson skoraði 23 stig og Sverrir Þór Sverrisson 15 en framlag þeirra dugði ekki gegn ÍR sem vann með 49 stiga mun. 

Gömlu brýnin úr Keflavík eru úr leik í keppninni en dregið verður í undanúrslit á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×