Volvo með KERS Finnur Thorlacius skrifar 31. mars 2014 10:00 Volvo S60 með KERS búnaði.
Þessi Volvo S60 bíll lítur út eins og hver annar Volvo, en svo er þó ekki. Hann er útbúinn sömu KERS-tækni og er um borð í mörgum Formúlu 1 bílum síðustu ára. KERS stendur fyrir „Kinetic Energy Recovery System“ og er búnaður sem endurheimtir orku við hemlun með kasthjóli. Kasthjólið snýst ógnarhratt, eða á um 60.000 snúningum á mínútu og afl þess má sækja beint inná drifrásina eða varðveita með rafhlöðum til seinni notkunar. KERS búnaður bílsins er ekki svo fyrirferðarmikill.KERS búnaður er í rándýrum ofurbílum eins og Porsche 918 Spyder, McLaren P1 og Ferrari LaFerrari, auk Formúlu 1 bíla, en hefur ekki enn sést í fjöldaframleiddum bílum á viðráðanlegu verði. Því ætlar Volvo að breyta og hyggst setja á markað bíla með KERS búnaði árið 2017. Önnur bílafyrirtæki eru einnig að vinna af framleiðslu á bílum með KERS tækni, svo sem Jaguar og Lotus og ef til vill fleiri. Sá Volvo S60 bíll sem hér sést er með 254 hestafla vél með forþjöppu og allt afl hennar er sent til framhjólanna, en aflið frá KERS búnaði hans fer til afturhjólanna. Svona bíll án KERS búnaðar er 7,68 í hundraðið en með KERS er hann aðeins 6,07 sekúndur. Afl kasthjólsins má endurheimta í 10 sekúndur samfleytt og bætast þá 80 hestöfl við það afl sem frá vél bílsins kemur. Volvo segir að með KERS búnaði eyði þessi S60 bíll 25% minna eldsneyti.
Mest lesið Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Innlent Einn lést í brunanum á Hjarðarhaga Innlent Mjög alvarlegt tilfelli Innlent Ákærður fyrir að ráðast á leigubílstjóra Innlent Alvarlega særður en ekki í lífshættu eftir árás í Úlfarsárdal Innlent Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Innlent Fær þyngri dóm fyrir að nauðga konu, taka það upp og senda henni Innlent Segja slúbberta hjá hinu opinbera kosta ríkið 30 til 50 milljarða árlega Innlent Útburður manns úr Bríetartúni dreginn til baka Innlent Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars Innlent