Þráðlaus hleðsla rafmagnsbíla Volkswagen árið 2017 Finnur Thorlacius skrifar 2. apríl 2014 12:19 Volkswagen E-Golf.
Volkswagen framleiðir nú meðal annars Golf og up! sem ganga eingöngu fyrir rafmagni og þurfa eigendur þeirra að setja þá í samband við heimilisrafmagns með rafmagnssnúru. Árið 2017 stefnir í það að eigendur slíkra bíla þurfi ekki einu sinni að setja bíla sína í samband heldur leggja þeim fyrir utan hjá sér fyrir ofan þar til gerðan búnað sem sér um að hlaða bílana án snúru. Þessi búnaður er þó ekki gefins, enginn bílaframleiðandi býður slíkan búnað enn, en fyrirtækið Evatran hefur framleitt slíkan búnað til hleðslu á bílunum Nissan Leaf og Chevrolet Volt og kostar hann 3.000 dollara, eða um 340.000 krónur. Toyota hefur einnig verið að prófa svona búnað til hleðsu á Prius bílum sínum í Japan. Vonandi verður þessi búnaður ódýrari þegar hann kemur til fjöldaframleiðslu og sölu hjá stóru bílaframleiðendunum.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent