Opni háskólinn í HR í samstarf við Bílgreinasambandið Finnur Thorlacius skrifar 29. ágúst 2014 15:30 Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, og Guðmunda Smáradóttir, forstöðumaður Opna háskólans í HR handsala samstarfið.
Á undanförnum mánuðum hefur Opni háskólinn í HR í samstarfi við Bílgreinasambandið unnið að undirbúningi námslínu fyrir stjórnendur. Fyrirmynd námsins er PMD stjórnendanám HR (Programme for Management Development) en námsefni hefur verið aðlagað að stjórnendum í bílgreinum. Námið er hagnýtt og lögð er áhersla á umræður og starfstengd verkefni. Námið er próflaust og ekki verða lögð fyrir heimaverkefni á milli námskeiða. Sérstök áhersla verður lögð á persónulega starfsþróun þátttakenda með það að leiðarljósi að efla faglega þekkingu stjórnenda og auka færni, frammistöðu og frumkvæði þeirra. Að kennslu koma margir af færustu sérfræðingum viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík auk samstarfsaðila úr íslensku atvinnulífi sem allir hafa mikla reynslu á sínu sviði, bæði af framkvæmd og kennslu. Námið er ætlað stjórnendum og lykilstarfsmönnum. Einnig eru dæmi um að starfsmenn fyrirtækja hafi stundað námið sem lið í undirbúningi fyrir stjórnendastöður. "Námið veitir gott yfirlit yfir margt af því sem stjórnendur kljást við í daglegum störfum sínum. Um er að ræða kjörinn vettvang fyrir stjórnendur sem vilja bæta þekkingu og getu án þess að skuldbinda sig til langtímanáms,” segir Guðmunda Smáradóttir, forstöðumaður Opna háskólans í HR. "Það er eitt af markmiðum Bílgreinasambandsins að efla menntun og færni starfsmanna þeirra fyrirtækja sem eru innan sambandsins og er þetta ein leið að því marki það er að bjóða uppá nám fyrir stjórnendur fyrirtækja í greininni,“ segir Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins. ,, Þetta nám er sérhannað fyrir bílgreinina og hennar umhverfi í víðum skilningi og á að gefa þeim einstaklingum sem það sitja víðari og betri sýn á starfsumhverfi sitt sem gerir það að verkum að viðkomandi á auðveldara með að leysa þau verkefni er verið er að fást við dags daglega. Þjónustan við viðskiptavininn verður að sama skapi markvissari og betri. Bílgreinasambandið bindur miklar vonir við samstarfið við Opna háskólann og erum við þess fullvissir að þeir einstaklingar sem sitja þetta námskeið verði betur í stakk búnir til að takast á við verkefni dagsins í sinni vinnu,“ segir Özur.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent