Bílar

Lundúnastrætó hlaðinn þráðlaust

Finnur Thorlacius skrifar
Grænir strætisvagnar í London.
Grænir strætisvagnar í London.
Í Lundúnum eru nú 800 Hybrid strætisvagnar og nokkrir vagnar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni. Vandinn með báðar gerðir þessara vagna er að hleðsla þeirra tæmist mjög fljótt.

Til að auka drægni Hybrid vagnanna hafa nú verið settar upp þráðlausar hleðslustöðvar á fjórum stöðvum til að byrja með þar sem vagnarnir fá hleðslu á biðstöðvum án þess að það þurfi að tengja þá, heldur hlaðast þeir þráðlaust.

Því ganga þeir nú í minna mæli á þeim dísilvélum sem taka við þegar rafhleðsla þeirra klárast. Fleiri slíkar stöðvar verða settar upp á næstu misserum í viðleytni borgaryfirvalda til að minnka mengun á strætum borgarinnar.






×