Brimborg hefur sölu á bílaleigubílum Finnur Thorlacius skrifar 2. september 2014 15:06 Mazda CX-5 jepplingurinn er einn þeirra bílaleigubíla sem Brimborg býður nú íslenskum kaupendum.
Nú er sumri tekið að halla, umferð ferðamanna að minnka og þá dregur úr þörfinni fyrir bílaleigur landsins að búa að stórum flota bíla. Fyrstu bílaleigubílarnir frá Dollar Thrifty eru nú komnir í sölu hjá Brimborg. Bílarnir eru af árgerðum 2014, 2013 og 2012 og eru því flestir í ábyrgð. Brimborg telur nú rakið tækifæri til að fjárfesta í nýlegum bíl á lægra verði. Bílafloti landsmanna er orðinn töluvert gamall og því eru margir, bæði einstaklingar og fyrirtæki, að velta fyrir sér að endurnýja. Með því að fjárfesta í nýlegum bíl lækkar rekstrarkostnaðurinn með lægri eyðslu og minna viðhaldi. Nýlegir bílar eru jafnframt öruggari en eldri bílar. Til að auðvelda viðskiptavinum kaupin býður Landsbankinn sérkjör á fjármögnun og Brimborg býður hagstætt uppítökuverð. Bílarnir eru af vörumerkjum Ford, Volvo, Mazda og Citroën. Frá Ford eru t.d. til sölu Ford Ka, Ford Fiesta, Ford Focus, Ford B-MAX, Ford Galaxy (7 sæta), Ford Mondeo, Ford Escape, Ford Kuga, Ford Explorer og Ford Transit Custom. Frá Mazda eru meðal annars Mazda2, Mazda3, Mazda5, Mazda6 og Mazda CX-5 . Frá Citroën má nefna Citroën C1, Citroën C3, Citroën C3 Picasso, Citroën C4, Citroën Grand C4 Picasso og Citroën Berlingo. Frá Volvo eru til sölu Volvo V40, Volvo XC60 og Volvo XC90. Bílarnir verða til sýnis á sölusvæðum Brimborgar í Reykjavík við Bíldshöfða 6 og 8 og í umboði Brimborgar á Akureyri, Tryggvabraut 5. Fyrstu bílarnir eru komnir í sölu og fleiri munu bætast við næstu vikurnar.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent