Fótbolti

Tap hjá Guðlaugi og Arnóri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Helsingborg sem tapaði fyrir IFK Gautaborg á heimavelli sínum í kvöld, 2-0. Guðlaugur lék allan leikinn en Arnór Smárason kom inn á sem varamaður á 75. mínútu.

Þá var Kristinn Jónsson í liði Brommapojkarna sem töpuðu fyrir toppliði Malmö, 2-0. Brommapojkarna er fyrir þó nokkru síðan fallið úr deildinni.

Helsingborg er um miðja deild með 39 stig en IFK Gautaborg í öðru sæti með 53 stig, níu stigum á eftir Malmö.

Í B-deildinni vann Sundsvall sigur á Sirius, 1-0, en Jón Guðni Fjóluson og Rúnar Már Sigurjónsson spiluðu allan leikinn fyrir síðarnefnda liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×