Gagnrýnir bréf formanns BHM Aðalsteinn Kjartansson skrifar 15. nóvember 2014 19:53 Guðmundur er bæði gagnrýninn á bréfið og bréfritarann Guðlaugu. Vísir
Guðmundur Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrar, segir sérstakt að Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna, hafi sent frá sér bréf í nafni bandalagsins um flutning Fiskistofu frá Hafnarfirði norður á Akureyri en hún er forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Hann segir efni bréfsins einnig sérstaka gagnvart félagsmönnum. Guðmundur gerði málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann benti á að eini háskóli landsins sem kenni sjávarútvegsfræði sé Háskólinn á Akureyri. Þar sagði hann einnig að mikil reynsla sé af sjávarútvegi í bænum og að fjöldi háskólamenntaðra starfsmanna búi á svæðinu. „Þessi framkoma hjá BHM gagnvart þeim félagsmönnum sem eru úti á landi er sérstök. Bréfið gefur það í skyn að það sé erfitt að vera með svona störf úti á landi,“ segir Guðmundur í samtali við Vísi. „Svo finnst mér svolítið sérstakt að þetta skuli vera sama konan í báðum þessum hlutverkum, sem forseti bæjarstjórnar og formaður BHM, að senda þetta bréf.“ Guðlaug skrifaði undir bréfið sem sent var til ráðamanna og hagsmunaaðila sem formaður BHM. Í bréfinu er flutningurinn gagnrýndur harðlega og ákvörðunin sögð illa ígrunduð, óundirbúin og feli í sér brot á lögum. Bæjarstjórnin í Hafnarfirði hefur líka gagnrýnt flutning Fiskistofu. Þóroddur Bjarnason, formaður stjórnar Byggðastofnunar, hefur viðrað svipuð sjónarmið á Facebook. Í samtali við Vísi segir hann Ísland vera lítið og að hagsmunaárekstrar séu nánast óumflýjanlegir. Sjálfur segist hann þurfa að vera meðvitaður um mismunandi aðstæður.
Alþingi Mest lesið Maðurinn fannst látinn Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Banaslys við Fossá Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ Innlent Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Innlent Inga skellihló að Sigurði Inga Innlent Faðirinn ekki lengur í einangrun Innlent Fleiri fréttir Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Staðan miklu alvarlegri þegar vígvöllurinn er stærri Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Banaslys við Fossá Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Sjá meira