Hyundai lækkar verð á öllum bílum Finnur Thorlacius skrifar 16. desember 2014 15:53 Hyundai Santa Fe.
Hyundai lækkaði í gær, mánudag, verð á öllum gerðum Hyundai bíla í tilefni af boðaðri lækkun á virðisaukaskatti úr 25,5% í 24% sem tekur gildi um áramótin. Að sögn Heiðars Sveinssonar, framkvæmdastjóra Hyundai í Garðabæ lækkaði verðið á bilinu frá 20 þúsundum króna til 100 þúsunda króna eftir gerðum, en í öllum tilvikum nam lækkunin 1,2% að lágmarki. Alls eru níu gerðir Hyundai í boði hjá umboðinu, sem heyrir undir BL ehf. Ódýrasta gerðin, i10, lækkar um 20 þúsund krónur og kostar nú frá 1970 þúsundum króna. Þá lækkar Hyundai i20 um 40 þúsund krónur, ix20 og i30 og i30 station um 50 þúsund krónur og i40 og i40 station um 70 þúsund krónur. Mest lækka Hyundai ix35 og Hyundai Santa Fe. Beinskiptur Hyundai ix35 dísil lækkar um 100 þúsund krónur og kostar nú frá 5.590 þúsundum króna. Ódýrasta gerð Santa Fe lækkar einnig um 100 þúsund og kostar nú frá 7.050 þúsundum króna. Dýrasta gerðin, sjö manna sjálfskiptur, dísil, lækkar einnig um 100 þúsund krónur og kostar nú 8.090.000 krónur. Á þessu ári hafa verið seldir rétt tæplega 600 Hyundai bílar hjá BL. Þeir eru meðal vinsælustu fyrirtækjabíla á markaðnum, enda bilanatíðni þeirra lág og viðhaldskostnaður lítill. Eftir að Hyundai merkið flutti í Garðabæ nálgast viðskiptavinir nú alla þjónustu á einum stað, söludeild, vara- og aukahluti sem og alla viðhaldsþjónustu.
Mest lesið Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Vongóð um stuðning Miðflokksins Innlent Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Innlent Notað á Íslandi þrátt fyrir að hafa mistekist annars staðar Innlent Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Erlent Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur Erlent Borgin beri ábyrgð sem eigandi Innlent Fellur frá máli sínu á hendur Hödd Innlent Skýr mynd komin á dularfullt andlát á Skjólbraut Innlent Ákærður fyrir gróf kynferðisbrot gegn sex ára stúlku Innlent