Stórtap hjá Bergischer | Íslendingarnir öflugir hjá Aue Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. desember 2014 19:43 Björgvin Páll varði tólf skot í marki Bergischer í kvöld. vísir/getty
Arnór Þór Gunnarsson skoraði eitt mark þegar Bergischer beið afhroð fyrir Melsungen á útivelli í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag. Lokatölur urðu 40-28, en Melsungen var 11 mörkum yfir í leikhléi, 23-12. Björgvin Páll Gústavsson varði tólf skot í marki Bergischer sem er í 13. sæti deildarinnar með 15 stig. Friesenheim bar sigurorð af Erlangen, 27-26, á heimavelli. Erlangen, sem vann óvæntan sigur á Rhein-Neckar Löwen í síðustu umferð, var yfir í hálfleik, 11-13. Sigurbergur Sveinsson skoraði eitt mark fyrir Erlangen og var tvívegis rekinn af leikvelli. Gunnar Steinn Jónsson var ekki á meðal markaskorara Gummersbach sem vann eins marks sigur, 29-30, á TuS N-Lübbecke á útivelli. Austurríski landsliðsmaðurinn Raul Santos var markahæstur í liði Gummersbach með tíu mörk, en Drago Vukovic var atkvæðamestur hjá heimamönnum með átta mörk. Íslendingarnir í Aue í þýsku B-deildinni skoruðu tíu af 28 mörkum liðsins í jafntefli gegn Hamm-Westfalen. Árni Þór Sigtryggsson og Hörður Sigþórsson skoruðu fjögur mörk hvor og Sigtryggur Rúnarsson, sonur Rúnars Sigtryggssonar þjálfara Aue, skilaði tveimur mörkum. Bjarki Már Gunnarsson og Sveinbjörn Pétursson leika einnig með Aue sem situr í 10. sæti deildarinnar. Þá skoraði Fannar Friðgeirsson þrjú mörk fyrir Grosswallstadt sem tapaði með fimm mörkum, 31-26, fyrir Bad Schwartau á útivelli.
Handbolti Mest lesið Sló átta ára dóttur sína eftir tap Sport Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Fótbolti Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Enski boltinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Enski boltinn Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti McIlroy skaut niður dróna Golf Heimir í vandræðum með flókinn þjóðsöng: „Ég mun ná þessu“ Fótbolti Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sjá meira