Handbolti

Viktor Gísli í úr­vals­liði fyrstu tveggja um­ferða undan­keppninnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Viktor Gísli átti sinn hlut í góðum úrslitum Íslands í fyrstu tveimur leikjum undankeppni EM 2026.
Viktor Gísli átti sinn hlut í góðum úrslitum Íslands í fyrstu tveimur leikjum undankeppni EM 2026. Vísir/Anton Brink

Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður Wisla Plock í Póllandi og íslenska landsliðsins í handbolta, var valinn í úrvalslið fyrstu tveggja umferða undankeppni Evrópumóts karla í handbolta sem fram fer 2026.

Ísland hóf undankeppnina með sex marka sigri á Bosníu í troðfullri Laugardalshöll. Þar var það Þorsteinn Leó Gunnarsson sem stóð uppi sem markahæsti leikmaður Íslands með 8 mörk en Viktor Gísli stóð fyrir sínu í markinu og varði 9 af þeim 27 skotum gestanna sem rötuðu á markið.

Á sunnudaginn, 10. nóvember, sóttu íslensku strákarnir svo Georgíu heim. Lauk leiknum með fimma marka sigri Íslands, 30-25.

Janus Daði Smárason fór fyrir íslenska liðinu í þeim leik með 6 mörkum og 8 stoðsendingum. Ómar Ingi Magnússon skoraði einnig 6 mörk ásamt því að gefa 3 stoðsendingar. Aftur stóð Viktor Gísli fyrir sínu í markinu en að þessu sinni varði hann 14 skot.

Skiluðu frammistöður íslenska markvarðarins honum í lið umferðarinnar að mati EHF, Handknattleikssambandi Evrópu. Sjá má eina af frábærum markvörslum Viktors Gísla í færslu EHF á Instagram hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×