Innlent

Fjórtán þingmenn vilja fordæma pyndingar CIA

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Birgitta er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Birgitta er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Vísir/Stefán
Fjórtán þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem pyndingar leyniþjónustu Bandaríkjanna frá hryðjuverkaárásunum 11. september 2001 eru harðlega fordæmdar. Tilefnið er birting skýrslu öldungadeildar bandaríska þingsins sem lýsir hrottalegum pyndingum á mönnum sem voru fangelsaðir í kjölfar hryðjuverkaárásanna og framkvæmdar voru undir stjórn CIA.

Forstjóri CIA hefur verið harðlega gagnrýndur í kjölfar skýrslunnar en hann hefur reynt að verja pyndingarnar.Vísir/AFP
Í greinargerð þingsályktunartillögunnar eru tekin dæmi um það sam fram kemur í skýrslunni. „Meðal annars er því lýst hvernig föngum var haldið vakandi, jafnvel í heila viku, stundum standandi, stundum með handleggi hlekkjaða fyrir ofan höfuð,“ segir meðal annars. 

„Sumum föngum var gefinn vökvi í gegnum endaþarm, án læknisfræðilegrar nauðsynjar. Var þetta framkvæmt með offorsi, sem leiddi í a.m.k. einu tilviki til skemmda á endaþarmi. Einum fanga, Majid Khan, var gefinn matur í gegnum endaþarm; hummus, pastasósu, hnetum og rúsínum var maukað saman og troðið inn um endaþarm,“ segir í greinargerðinni. 

Þá er einnig tekið dæmi um meðferð CIA á Gul Rahman sem var haldið vakandi í tvo sólarhringa. „Hann var látinn þola ærandi hávaða í algeru myrkri og einangrun, settur í kaldar sturtur og hlekkjaður við vegg í stellingu sem neyddi hann til að leggjast á kalt gólf,“ segir í greinargerðinni. Föt hans voru tekin og látinn vera í peysu einum fata. Hann lést úr ofkælingu.

Meðferð fanga í Guantanamo var fordæmd á Alþingi árið 2007.Vísir/AP
Fleiri dæmi eru tekin í greinargerðinni.

Þingmennirnir telja afar brýnt að sú hræðilega meðferð á fólki sem lýst er í skýrslunni verði fordæmd um heim allan. Mælast þeir til að Alþingi bregðist fljótt við og fordæmi grimmdarverkin með formlegum og opinberum hætti. Verði tillagan samþykkt er það ekki í fyrsta sinn sem Alþingi fordæmir mannréttindabrot og ómannúðlega meðferð á föngum Bandaríkjamanna en það gerði þingi árið 2007 vegna meðferðar fanga í Guantanamo.

Flutningsmenn tillögunnar eru Birgitta Jónsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Árni Páll Árnason, Óttarr Proppé, Helgi Hrafn Gunnarsson, Össur Skarphéðinsson, Ögmundur Jónasson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Katrín Júlíusdóttir, Jón Þór Ólafsson, Brynhildur Pétursdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Róbert Marshall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×