Mikill áhugi á veiði í Elliðaánum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 15. janúar 2014 17:15 Sótt var stíft um veiðileyfi í Elliðaánum að þessu sinni eins og í fyrra þegar draga þurfti milli manna á eftirsóttustu dögunum. Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, annaðist dráttinn. Fréttablaðið/Anton
Umsóknir og eftirspurn eftir veiðileyfum fyrir næsta sumar hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur voru framar vonum, segir í tilkynningu frá félaginu. Umsóknarfrestur félagsmanna um veiðileyfi átti að renna út í síðustu viku en var framlengdur fram til miðnættis á mánudag í þessari viku. Þar á undan hafði talsvert selst í forsölu í vetrarbyrjun. „Það er alltaf sami áhuginn á Elliðaánum, þær munu seljast upp í úthlutun eða því sem næst,“ er haft eftir Bjarna Júlíussyni, formanni SVFR, á vef félagsins. „Forsalan gekk jafnframt vonum framar og við erum því heilt yfir mjög ánægð, það er alveg ljóst að salan í sumar verður góð. Við erum betur stödd en á sama tíma í fyrra, svo dæmi sé tekið. Vissulega eru einhverjar gloppur hér og þar sem við munum koma í vefsöluna að úthlutun lokinni, í byrjun febrúar,“ segir Bjarni. Þá kemur fram að þótt félagsmönnum SVFR hafi fækkað um 12 prósent frá því sem mest var og veiðisvæðum fækkað hafi umsóknum ekki fækkað nema um 10 prósent.
Stangveiði Mest lesið Loksins að lifna yfir Hraunsfirði Veiði Fer Jökla yfir 1000 laxa í sumar? Veiði Barátta við stórfisk í Brunná Veiði Síðasta holl með 85 laxa í Kjósinni Veiði Fyrsti 20 punda laxinn í sumar Veiði Aðalfundur SVFR og kosning til stjórnar Veiði Grimmdarverk í Þingvallavatni Veiði Þúsund lítra olíutankur á botni Mývatns Veiði Stórurriði sleit sig lausann við Elliðavatn í gærkvöldi Veiði Ekki bara smálaxar í Leirvogsá Veiði