Leiða saman hesta sína 11. september 2014 16:30 Óskar Guðjónsson og Ife Tolentinokoma fram í Mengi í kvöld. Mynd/Einkasafn „
Í raun hófst þetta verkefni fyrir 12 árum án okkar vitundar þegar ég hitti Óskar í fyrsta skipti í London. Það var eins og við hefðum spilað saman í mörg ár og að hann vissi allt um grúvið og sálina í brasilískri tónlist en þó þannig að hann bætti einhverju mjög sérstöku við hana. Tveim árum síðar var ég á Íslandi að spila með Óskari og fleiri íslenskum tónlistarmönnum. Tilfinningin varð enn þá sterkari. Ég hafði fundið nýja leið til að spila tónlistina sem ég elska,“ segir brasilíski söngvarinn og gítarleikarinn Ife Tolentino sem kemur nú til Íslands 12. árið í röð til að leika með Óskari Guðjónssyni saxófónleikara í Mengi í kvöld klukkan 21.00. Leiðir þeirra lágu saman í London er Óskar var búsettur þar. Eitt af markmiðum Óskars var að kynnast brasilískum gítarleikara og söngvara til að nema þá fögru list sem þetta einstaklega hjartahlýja fólk hefur gefið umheiminum. Bossa nova og samba eru bara þekktustu stílar þessarar margslungnu tónlistar sem Ife og Óskar munu leika. Það má segja að þetta hafi verið ást við fyrsta tón. Vinátta Ife og Óskars hefur getið af sér geisladiskinn VOCÊ PASSOU AQUI. Ife hefur um árabil verið búsettur í London og er vel þekktur innan brasilískrar tónlistarsenu þar í borg. Hlaut hann nýverið verðlaun, Brazilian International Press Awards.
Tónlist Mest lesið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Fundu ástina á Domino's Lífið Hinsegin ást í loftinu Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira