Tískuárið 2014: Normcore og hvítir skór Álfrún Pálsdóttir skrifar 28. desember 2014 11:00 Normcore snýst í raun um að klæða sig eins óeftirtektarvert og hugsast getur. vísir/getty
Tískan á árinu sem er að renna sitt skeið var fjölbreytt að venju. Hönnuðir flökkuðu milli tískuhúsa, raunveruleikastjarna átti tískupallana en þangað rötuðu líka skyndibitakeðjur og hinn venjulegi klæðaburður fékk uppreisn æru.#normcore Þessi bylgja fór að gera vart við sig snemmsumars. Sumir vilja kenna þessa tískustefnu við vinsældir hljómsveitarinnar Future Island, en söngvari sveitarinnar Samuel T. Herring smellpassar inn í stefnuna sem snýst í raun um að klæða sig eins óeftirtektarvert og hugsast getur. Stílistar, bloggarar og fleiri tískutappar tóku þessari stefnu fagnandi og klæddust smekkbuxum, skyrtum hnepptum upp í háls og sniðlausum flíkum á árinu. Eitt afsprengi þessarar stefnu eru vinsældir hvítu klassísku Stan Smith strigskónna frá Adidas og Birkenstock inniskónna sem voru skór sumarsins 2014 ef litið er yfir götutískumyndir ársins. Spurning hvort þessi venjulega tíska haldi áfram 2015?Oscar de la Renta dó á árinu en hann var í miklu uppáhaldi hjá stjörnum og kóngafólki.vísir/gettyKonungur féll frá Oscar de la Renta dó á árinu, 82 ára að aldri. Hönnuðurinn var frægur fyrir íburðamikla kjólahönnun. Hann skaust upp á stjörnuhimininn þegar Jacqueline Kennedy, þáverandi forsetafrú Bandaríkjanna, klæddist hönnun hans en Oscar de la Renta var í miklu uppáhaldi hjá stjörnum jafnt og kóngafólki.Komu og fóru Eins og gengur og gerist voru einnig sviptingar í tískuheiminum á árinu. Það ber hæst að hið franska og fornfræga tískuhús Louis Vuitton fékk nýjan skipstjóra, Nicholas Gesquiére tók við af Marc Jacobs við góðar undirtektir. Þá fékk hinn nýji Íslandsvinur, John Galliano, nýja vinnu eftir að hann var rekinn frá Chistian Dior árið 2011. Galliano frumsýnir nýja línu sína fyrir Maison Martin Margiela í janúar og er miklar eftirvæntingar fyrir endurkomu hans í tískuheiminn. Annar sem sló í gegn í nýju hlutverki á árinu var Jeremy Scott fyrir Moschino en hann þykir ferskur blær fyrir merkið – til dæmis kom hann skyndibitakeðjum aftur á tískuradarinn í nafni Moschino.Kimye á forsíðu Vogue Það varð uppi fótur og fit þegar forsíða aprílheftis ameríska Vogue lak út en hana prýddu hjónin Kim Kardashian og rapparinn Kanye West. Mörgum fannst forsíðan ósmekkleg og fyrir neðan virðingu Vogue, en forsíðumynd hjá þeim þykir með eftirsóttri fjölmiðlaplássum. Nokkrum mánuðum sienna talaði ritstýran, Anna Wintour, um umdeildu forsíðuna í viðtali þar sem hún sagði eftirfarandi: “Ég held að ef við værum alltaf smekkleg og setttum bara smekklegt fólk á forsíðuna, yrðum við frekar leiðinlegt tímarit! Enginn mundi tala um okkur. Það er mjög mikilvægt að fólk tali um okkur.”Lupita Nyong"o stal senunni í hvert sinn sem hún mætti á rauða dregilinn.vísir/gettyÁtti tískupallana Það var enginn önnur er litla systir Kardashian-systrana, Kendall Jenner, sem kom öllum á óvart og átti tískupallana á tískuvikunum á árinu. Á stuttum tíma hefur Jenner skapað sér flottan feril sem fyrirsæta meðal þeirra bestu. Stúlkan sem hóf feril sinn fyrir fjórum árinu í Teen Vogue þrammar nú tískupalla fyrir merki eins og Chanel, Givenchy, Marc Jacobs, Diane von Furstenberg og Dolce and Gabbana. Í nóvember tilkynnti hún svo aðdáendum sínum, sem skipta tugi þúsunda, í gegnum Instagram að hún væri nýja andlit Estée Lauder merksins.Drottning rauða dregilsins Hin unga leikkona Lupita Nyong"o stal senunni í hvert sinn sem hún mætti á rauða dregilinn á árinu en kjólaval hennar var óaðfinnanlegt. Sá sem stóð upp úr var Prada kjóllinn sem leikkonan var á Óskarsverðlaunahátíðinni í sérstökum Nairóbí-bláum lit en hún toppaði alla lista yfir best klæddu konur kvöldsins. Nyong"o var andlit Miu Miu herferðarinnar í byrjun árs, hún prýddi forsíðu júlí heftis ameríska Vogue (önnur afríska konan í sögunni) og er nýtt andlit Lancome snyrtivörurrisans.
Fréttir ársins 2014 Golden Globes Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira