Viðskipti innlent

Hægt að panta leigubíl með appi hjá BSR

ingvar haraldsson skrifar
Guðmundur Börkur Thorarensen, framkvæmdastjóri BSR, segist sannfærður um að appið muni borga sig.
Guðmundur Börkur Thorarensen, framkvæmdastjóri BSR, segist sannfærður um að appið muni borga sig. vísir/
Bifreiðarstöð Reykjavíkur (BSR) hefur gefið út app eða smáforrit sem hægt er að panta leigubílaferðir í gegnum. Appið ber nafnið „BSR appið“ og er nú fáanlegt í prufuútgáfu í Playstore í Android símum og Appstore í símum og spjaldtölvum frá Apple. Guðmundur Börkur Thorarensen, framkvæmdastjóri BSR, segir að appið komi formlega út í þessum mánuði eða þeim næsta.

„Þetta er búið að vera í prufukeyrslu síðan í nóvember. Nú erum við búin að keyra algjörlega á appinu í eina viku og það hefur gengið frábærlega,“ segir Guðmundur. Hann segir um þrjú kerfi að ræða, eitt fyrir bílstjóra, annað fyrir viðskiptavini og það þriðja fyrir stjórnstöð BSR.

Hægt verður að greiða með appinu á næstu vikum

Guðmundur segir að í prufuútgáfunni sé ekki hægt að sjá hvar bílstjórinn sem sæki viðskiptavininn sé staddur. Sú viðbót sé hinsvegar væntanleg í næstu útgáfu. Þá sé verið að bíða eftir samþykki greiðslumiðlunar svo hægt sé að greiða fyrir ferðir með appinu. Hann á von á að það samþykki fáist á næstu vikum.



Guðmundur segir appið hannað af íslenska fyrirtækinu Reontech og því alíslensk framleiðslu. „Með því að hafa hönnunina íslenska höfum við sparað þjóðarbúinu tugi milljóna í gjaldeyristekjur,“ segir hann.

Segir Uber ekki henta íslenskum aðstæðum

Aðspurður hvort BSR sé að svara hugsanlegri samkeppni Uber hér á landi segir Guðmundur að Uber henti ekki fyrir íslenskar aðstæður.  „Þetta er betra kerfi en Uber. Þú hringir ekkert í Uber ef að þú þarft að kvarta yfir einhverju,“ segir Guðmundur. Uber er leigubílaþjónusta þar sem ferðir er pantaðar og greiddar með appi. Fyrirtækið tilkynnti í desember síðastliðnum að vinna væri hafin við að bjóða upp á leigubílaþjónustu á Íslandi.

Sjá einnig: Uber vinnur að því að hefja starfsemi í Reykjavík

Guðmundur segir kostnað við hönnun appsins hafa verið umtalsverðan fyrir BSR. „Við erum sannfærð um að þetta muni borga sig,“ segir Guðmundur . Hann vonast til að með appinu muni viðskiptavinum BSR fjölga og markaðshlutdeild fyrirtækisins á leigubílamarkaði sem nú sé um 20 prósent aukast. „Túrarnir sem koma í gegnum appið verða hrein viðbót,“ segir Guðmundur. Hann segir að í framhaldinu verði starfsmönnum í símveri fjölgað til að auka þjónustuna við viðskiptavini BSR.


Tengdar fréttir

Notandi dásamar Uber en leigubílstjórar eru uggandi

Bandaríska hugbúnaðar- og leigubílafyrirtækið Uber er með til skoðunar að hefja rekstur á Íslandi en fyrirtækið hefur notið gríðarlegra vinsælda í Bandaríkjunum og víðar.

Uber bannað á Spáni

Fjórða landið til að banna starfsemi fyrirtækisins í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×