KR-ingar geta orðið deildarmeistarar í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2015 16:00 Michael Craion í bikarúrslitaleiknum um síðustu helgi. Vísir/Þórdís Inga
KR-ingar gætu fagnað titli í kvöld í fyrsta leik sínum eftir vonbrigðin í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni um síðustu helgi. KR tekur á móti Skallagrími í kvöld í 19. umferð Dominos-deildar karla en KR er með fjögurra stiga forystu á Tindastól þegar fjórar umferðir eru eftir. KR gæti tryggt sér deildarmeistaratitilinn í kvöld verði úrslitin liðinu hagstæð. KR þarf þá að vinna Borgnesinga sem og að treysta á að Grindavíkurliðið vinni Tindastól á Króknum. KR væri þá með sex stiga forystu á Tindastól þegar sex stig væru eftir í pottinum en Stólarnir verða alltaf neðar en KR ef liðin enda með jafnmörg stig því KR er með betri stöðu úr innbyrðisleikjum liðanna. KR vann með sex stigum á heimavelli sínum en Tindastóll vann KR með þremur stigum í leik liðanna fyrir norðan. Það eru samt ekki miklar líkur á sigri Grindavíkur á Sauðárkróki í kvöld ef marka má úrslit vetrarins því Tindastólsliðið hefur unnið alla níu heimaleiki sína í deildinni í vetur þar á meðal sigur á toppliði KR. KR missti frá sér bikarinn til Stjörnunnar á lokasprettinum í bikarúrslitaleiknum á laugardaginn en liðið missti einnig leikstjórnandann sinn Pavel Ermolinskij í meiðsli. Það fara alls fjórir leikir fram klukkan 19.15 í kvöld því auk leiks KR og Skallagríms í DHL-höllinni í Frostaskjóli og leiks Tindastóls og Grindavíkur í Síkinu á Sauðárkróki þá mætast Njarðvík og Haukar í Ljónagryfjunni í Njarðvík og ÍR-ingar taka á móti Snæfelli í Hertz hellinum í Seljaskóla.
Dominos-deild karla Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira