Innlent

Fráleitt að leggja til að óbólusett börn fari til dagforeldra

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Sigrún Edda Lövdal, formaður Félags dagforeldra í Reykjavík, segir það fráleitt að leggja til að óbólusett börn fái inn hjá dagforeldrum. Hún segir það jafnframt sæta furðu að ekki hafi verið haft samband við félagið áður en lagt var til að óbólusett börn sem ekki fengju inngöngu í leikskóla færu til dagforeldra.

Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, sagði í fréttum RÚV í gær að ef tillaga flokksins um að óbólusett börn fengju ekki leikskólapláss í Reykjavík næði fram að ganga, gætu þau farið til dagforeldra. Tillagan var þó felld í borgarstjórn í gær.

Börnin ekki sett í hættu

„Ég hef heyrt í fjölmörgum félagsmönnum og þeir eru allir á sama máli. Að láta sér detta í hug að börnum sem er meinaður aðgangur að leikskóla að ætla að pota þeim inn til dagforeldra. Við erum með lítil kríli sem ekki er búið að bólusetja og það segir sig alveg sjálft að við setjum börnin ekki í þessa hættu,“ segir Sigrún.

„Ef þau mega ekki vera innan um stóru börnin, af hverju ættu þau þá að mega vera innan um t.d níu mánaða gamalt barn sem verður ekki bólusett við mislingum fyrr en við átján mánaða aldur? Þetta var bara vanhugsað hjá Halldóri,“ bætir hún við.

Dagforeldrastéttin verði lögð niður

Fyrir liggur á Alþingi þingsályktunartillaga um að foreldrar geti átt kost á því að koma barni sínu fyrir á leikskóla strax að loknu fæðingarorlofi. Verði tillagan samþykkt mun stétt dagforeldra nánast leggjast niður. Gert er ráð fyrir að börnum hjá dagforeldrum muni þá fækka um 400 og dagforeldrum fækka um helming.

„Þess vegna verð ég að viðurkenna að það kom spánskt fyrir sjónir að þeir skyldu muna eftir okkur núna því að stétt dagforeldra hefur yfirleitt ekki verið hátt skrifaður hjá borgaryfirvöldum. Þetta er bara algjörlega út í hött,“ segir Sigrún.


Tengdar fréttir

Láti foreldra vita um óbólusetta skólafélaga

Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, telur að upplýsa eigi foreldra ef börn sem ekki eru bólusett gangi í skóla með börnum þeirra. Þá hefðu foreldrar það val að setja barnið sitt í annan skóla með hærra hlutfalli bólusettra barna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×