Suzuki Vitara fékk 5 stjörnur í öryggisprófunum Finnur Thorlacius skrifar 5. maí 2015 15:12 Suzuki Vitara af nýrri kynslóð kemur í sölu hér á landi með haustinu.
Suzuki Vitara er fyrsti jepplingurinn sem fær fullt hús stiga, 5 stjörnur, í árekstrarprófun Euro NCAP á þessu ári. Niðurstöðurnar voru ótvíræðar á öllum sviðum prófunarinnar og þær setja nýjan Vitara á stall yfir öruggustu bílana í þessu flokki. Suzuki Vitara fékk hæstu einkunn í öllum fjórum helstu prófunarþáttunum, þ.e. öryggi farþega, öryggi barnungra farþega, öryggi annarra vegfarenda og akstursstoðkerfi sem stuðla að auknu öryggi. Kröfurnar sem þarf að uppfylla á þessu sviði eru strangari en nokkru sinni áður. Fimm stjörnur eru hámarkseinkunn og einungis þau ökutæki sem uppfylla hámarksvörn fyrir farþega og vegfarendur hljóta hana. Einn helsti öryggisþátturinn í nýjum Vitara er svokallað „Total Effective Control Technology“ sem felur í sér samspil aflögunarsvæðis fyrir farþegarými og léttleika öktækisins. Mikil notkun á hástyrktarstáli í yfirbyggingu Vitara og tölvuvædd verkfræðiútfærsla í hönnun stuðla einmitt að framúrskarandi gildum á þessu sviði. Vitara kemur m.a. með sjö öryggispúðum. Prófanir Euro NCAP, sem er leiðandi stofnun í Evrópu á sviði öryggismála ökutækja, leiðir í ljós að hönnun framsæta og hnakkapúða veita fyrirtaks vernd gegn hálshnykkjum við aftanákeyrslur.Nýr Suzuki Vitara er væntanlegur á markað á Íslandi með haustinu.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent