Körfubolti

Ragnar kominn aftur til Þorlákshafnar

Ragnar og Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórs.
Ragnar og Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórs. mynd/þór
Risinn Ragnar Nathanaelsson er kominn aftur í íslenska boltann.

Hann skrifaði í gær undir samning við sitt gamla félag, Þór í Þorlákshöfn.

Ragnar reyndi fyrir sér í atvinnumennsku á síðasta tímabili þar sem hann var í herbúðum sænska liðsins Sundsvall Dragons.

Þar eyddi hann mestum tíma á bekknum og fékk fá tækifæri.

Hann hefur því ákveðið að koma heim aftur og verður í Dominos-deildinni næsta vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×