Viðskipti erlent

Í beinni: Apple kynnir nýjustu vörurnar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Margir hafa beðið í röðum eftir því að viðburðurinn hefjist.
Margir hafa beðið í röðum eftir því að viðburðurinn hefjist. vísir/nordicphotos
Apple kynnir í dag afrakstur vinnu sinnar undanfarin misseri. Kynningin er haldin árlega og er venjan að fréttir séu sagðar af breytingum á stýrikerfum fyrirtækisins en einnig hafa nýjar vörur á borð við tölvur og jafn vel iPad ratað á kynninguna. Útsending frá viðburðinum hefst nú klukkan fimm.

Þessi uppskeruhátíð hefst í dag og stendur yfir til 12. júní. Hægt er að horfa á útsendinguna með því að smella hér og hér má finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að fylgjast með í snjalltækjum fyrirtækisins. Hér að neðan er hægt að fylgjast með því hvað notendur Twitter hafa að segja um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×