Lífið

Djazz í Djúpinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Silva og Anna Sóley koma fram á mánudagskvöldið.
Silva og Anna Sóley koma fram á mánudagskvöldið.
Næstkomandi mánudag, 8. júní, verða haldnir jazztónleikar í Djúpinu. Fram koma söngkonurnar Silva og Anna Sóley með þeim spila Hilmar Jensson á gítar og Þórður Högnason á bassa. Tónleikarnir hefjast kl 20:00 og kostar 1000 kr. inn.

Anna Sóley stundar nú nám við Tónlistarskóla FíH undir leiðsögn Guðlaugar Drafnar Ólafsdóttur og lauk framhaldsprófi nú í vor. Hún hefur bæði komið fram sem jazzsöngkona og flutt sínar eigin lagasmíðar sem eru undir áhrifum frá soul, fönk og jazzi.

Af hverju jazz? „Nostalgía og frelsi, leyfið til að leika sér með laglínur og persónulegan stíl,“ segir Anna Sóley.

Silva stundar söngnám við Tónlistarskóla FÍH og er á sínu þriðja ári. Þar hafa kennarar hennar verið Ragnheiður Gröndal, Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og Hilmar Jensson. Silva hefur sungið reglulega á kaffihúsum borgarinnar en í fyrra hélt hún sérstaka Chet Baker tónleika í Hannesarholti.

Af hverju jazz? „Af því að ég ólst upp við jazz tónlist. Ég býst við því að ég elski jazz, það er svo mikil tilfinning sem fylgir því og frelsið er cool.“

Djúpið er hópasalur á neðri hæð á veitingahúsinu Horninu við hafnarstræti í Reykjavík. Veitingahúsið Hornið opnaði árið 1979 og er enn í sinni upprunalegu mynd. Hornið er með ítölskum blæ og var fyrsti veitingastaðurinn í þessum stíl á Íslandi.

Hornið er fjölskyldufyrirtæki með Jakob H. Magnússon og eiginkonu hans Valgerði Jóhannsdóttir fremst í flokki og nú hefur dóttir þeirra hún Ólöf tekið við eldhúsinu og er yfirmatreiðslumaður staðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×